Stjórnarfundur 27. október 2003
Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Matthías
Þorvaldsson, Kristján Már Gunnarsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ísak
Örn Sigurðsson, Kristján Blöndal, Guðmundur Ólafsson, Una
Árnadóttir, Jóhann Stefánsson, Helgi Bogason og Stefanía
Skarphéðinsdóttir.
| 1. Skýrsla forseta Kristján B. Snorrason, nýkjörinn forseti BSÍ, kynnti sig og bauð
fundarmenn velkomna á fyrsta fund nýrrar stjórnar. Hann sagðist
vilja halda áfram að leggja aðaláherslu á fræðslumálin og það væri
mikilvægt í því sambandi að auka fréttaflutning og virkja
fjölmiðlana. |
| 2. Skýrsla framkvæmdastjóra
Það gengur vel að vinna tvímenningskvóta samkv. nýjum reglum,
enda fyrsta svæðamótið um næstu helgi. |
| 3. Verkaskipting stjórnar
Varaforseti: Matthías Þorvaldsson |
| 4. Skipun fastanefnda Mótanefnd: |
| 5. Önnur mál a) Matthías Þorvaldsson spurði um tilurð og tilgang
Alfreðssjóðsins. Stefanía skýrði í grófum dráttum tilurð sjóðsins
og að hann hefði verið stofnaður sem fræðslusjóður yngri
spilara. |