Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Hegðunarviðmið

Hegðunarviðmið fyrir iðkendur


1. Komdu fram af virðingu

  • a. Komdu eins fram við alla óháð aldri, kyni, kynþætti, kynhneigð, fötlun,
    stjórnmálaskoðunum, uppruna, trúarbrögðum eða félagslegri stöðu.

  • b. Berðu virðingu fyrir einstaklingum óháð getu eða metnaði til að ná árangri.

  • c. Sýndu íþróttinni virðingu og virtu reglur hennar, venjur og siði.

  • d. Berðu virðingu fyrir andstæðingum, dómurum, foreldrum/forsjáraðilum,
    sjálfboðaliðum, þjálfurum og öðru starfsfólki.

  • e. Leggðu þitt að mörkum til að skapa jákvætt andrúmsloft sem er laust við
    líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi.


2. Vertu heiðarleg(ur)

  • a. Farðu eftir reglum íþróttarinnar og komdu fram af fullkomnum heilindum og
    háttvísi gagnvart sjálfum þér og öðrum.

  • b. Leggðu þitt að mörkum til að skapa jákvætt andrúmsloft og umhverfi sem er
    laust við vímuefni og árangursbætandi lyf.

  • c. Taktu aldrei þátt í veðmálum, fjárhættuspilum eða viðskiptum í tengslum við
    íþróttaviðburði þar sem þú getur haft áhrif á úrslit. Veittu aldrei upplýsingar
    um íþróttir sem þú eða aðrir geta hagnast á.


3. Vertu góð fyrirmynd bæði innan sem utan vallar

  • a. Berðu ábyrgð á eigin hegðun.

  • b. Gerðu þitt besta þannig að þú fáir sem mest út úr æfingunni.

  • c. Vertu sanngjarn, tillitssamur og heiðarlegur og hafðu það hugfast að þú ert
    fyrirmynd yngri iðkenda.

  • d. Tileinkaðu þér heilbrigðan lífsstíl.

  • e. Misnotaðu ekki stöðu þína og vald með kynferðislegum tilburðum eða með
    öðrum hætti.