1. Fræðslumálin
Kristján B. Snorrason setti fundinn og gaf Ljósbrá orðið.
Ljósbrá upplýsti að enn vantaði 3. mann í fræðslunefnd. Síðan rakti
Ljósbrá atburði fræðslumála fram til þessa.
Það er ekki nægileg aðsókn á miðvikudagskvöldum. Hefur farið í
heimsóknir til skólastjóra framhaldsskóla, sem lýstu ánægju yfir
starfi fræðslunefndar BSÍ. Lagði fram punkta/hugmyndir um
áframhaldandi starf fræðslunefndar.
Að áliti hennar er þegar kominn 8-10 para hópur sem skynsamlegt er
að þjálfa áfram, en hugsanlega ætti að tvískipta hópnum þar sem
hlutur hópsins er vænlegur til þjálfunar fyrir
unglingalandslið.
Minntist einnig á að finna þarf vettvang fyrir hóp bráðgerða barna
sem hún hefur verið með í þjálfun. Ekki er skynsamlegt að láta þau
mæta í spilamennsku á miðvikudögum.
Ljósbrá taldi það lífsnauðsyn að hvergi verði slakað á
vinnunni.
Ákveðið að fá tillögur frá fræðslunefnd um áframhaldandi starf
næsta árs.
Ljósbrá yfirgaf fundinn.
|
2. Skýrsla forseta
Forsetinn lýsti ánægju með framkvæmd "Mónumótsins" og upplýsti
einnig að almenn ánægja virðist ríkja með nýja framkvæmd
úrslitakeppni Íslandsmótsins.
Forsetinn er að endurskoða ýmsa verksamninga sem eru í gangi, sem
margir hverjir eru komnir til ára sinna.
Ákveðið var að hafa næsta stjórnarfund 18. maí n.k.
|
3. Skýrsla framkvæmdastjóra
Er að undirbúa tvímenninginn og hefur fengið staðfestingu frá
öllum svæðum nema tveimur.
Framkvæmdum á þakinu er lokið og stóðst áætlun, þ.e. kostnaður var
tæplega kr. 1.500 þúsund.
Þrjár síður eru komnar í notkun á textavarpinu, en erfitt í notkun
til að byrja með. Stefanía vakti athygli stjórnar á síðasta hefti
Dansk Bridge, þar sem fjallað er um fræðslumál og fjölgun yngri
spilara í Danmörku og taldi þar margar góðar hugmyndir að
finna.
|
4. Sumarbridge
Matthías og Ísak viku af fundi.
Tilboð opnuð í sumarbridge. 2 tilboð bárust. Samþykkt án mótatkvæða
að taka tilboði Matthíasar, þar sem boðið var upp á spilamennsku 5
kvöld í viku.
|
5. EM Malmö
Undirbúningur á fullu í báðum flokkum. Búið að velja landslið í
opnum flokki:
Magnús Magnússon, Matthías Þorvaldsson, Þröstur Ingimarsson, Bjarni
Einarsson, Þorlákur Jónsson og Jón Baldursson.
Ætlast er til að keppendur séu í eins fatnaði. Búið að fá tilboð í
jakka - buxur/pils. Samþykkt að hækka fjárveitingu um kr.
15.000/mann
|
6. Veitingasalan
Í 7 mánaða uppgjöri er ca. kr. 450.000 hagnaður. Áætlun gerir
ráð fyrir
kr. 700.000 hagnað fyrir allt árið Í fyrra var hagnaðurinn rúmlega
kr. 900.000. Forsetinn telur að BSÍ beri ábyrgð á sínu
vínveitingaleyfi og það er ekki hægt að framselja það. Einnig er
greinilegt óhagræði að skipta um rekstraraðila á miðju ári og voru
því útboðsgögnin fyrir sumarbridge án veitingasölunnar. Kristján
Már vill klára árið en er tilbúinn að skoða málið ef einhver sýnir
rekstrinum sérstakan áhuga.
|
7. Önnur mál
Forsetinn sagði frá skemmtilegu móti í Borgarnesi, þar sem
spilað var form sem kallað er "Patton".
Kristján Blöndal og Matthías ætla að leggja fram hugmynd að
deildakeppni á næsta stjórnarfundi.
Fleira ekki rætt, fundi slitið kl. 18:20
|