Stjórnarfundur BSÍ 16. nóvember 2004
Mættir á fundinn: Kristján B. Snorrason, Guðmundur
Ólafsson, Erla Sigurjónsdóttir, Ólafur Steinason, Einar Jónsson og
Stefanía Skarphéðinsdóttir. Kristján Blöndal og Matthías
Þorvaldsson mættu eftir að fundur var hafinn. Helgi Bogason, Jóhann
Stefánsson og Sveinn Rúnar Eiríksson voru fjarverandi.
| 1. Skýrsla framkvæmdastjóra
Forseti setti fundinn kl. 17:05 og bauð fundarmenn
velkomna. |
| 2. Skýrsla forseta Kristján forseti ræddi góðan árangur Íslendinga á nýliðnu
Ólympíumóti. Hann sagði að það hefði verið ánægjulegt að komast upp
úr riðlinum og það sýndi að liðið hefði átt erindi á mótið.
Samþykkt var að umbuna landsliðinu fyrir árangurinn með því að
bjóða þeim út að borða ásamt mökum. |
| 3. Stefnumótun Forseti sagði að gera þurfi starfslýsingar fyrir forseta,
stjórn, framkvæmdstjóra, nefndir og keppnisstjóra BSÍ. Samþykkt að
Matthías vinni starfslýsingu forseta, Guðmundur starfslýsingu
framkvæmdastjóra, Ólafur framkvæmdaráðs og Kristján forseti leiði
restina af starfslýsingagerð. |
| 4. Árgjald Ársþing BSÍ fól stjórninni að ákveða árgjald fyrir yfirstandandi
keppnistímabil. Stjórn BSÍ lýsir yfir ánægju með að félög gefi
afslátt til yngri spilara og eldri borgara. Vegna þess hve flókið
það er í framkvæmd og eftirliti að hafa mismunandi félagsgjöld, þá
samþykkir stjórnin að félagsgjöldin verði óbreytt, 100 kr. á
spilara á spilakvöld. |