Fréttir 2005
Minningarmót Harðar Þórðarsonar 2005
Selfyssingarnir Kristján Már Gunnarsson og Helgi Grétar Helgason unnu sigur á Minningarmóti Harðar en Helgi Jónsson og Helgi Sigurðsson höfnuðu í öðru sæti.
Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar
Þátttaka á jólamóti Bridgefélags Hafnarfjarðar og Sparisjóðs Hafnarfjarðar var með besta móti. Alls mættu 71 par, sem er fjölgun um 5 pör frá fyrra ári.
Íslandsbankamót í tvímenningi
Hið árlega Íslandsbankamót í tvímenningi á vegum Bridgefélags Akureyrar verður haldið á Hótel KEA föstudaginn 30.desember. Þar sem illa stendur á frídögum milli jóla og nýárs mun það verða um kvöldið og hefjast kl.
KEA hangikjöt í húsi
Jólatvennu B.A. lauk þriðjudaginn 20.desember en þar var spilað um hangikjöt og magál frá Norðlenska. Spiluð voru tvö aðskilin kvöld þar sem betra skorið gilti til verðlauna.
Fádæma Frábær Fásveitakeppni, ofstuðluð að auki
Rétt náðist á 2 borð í kvöld en spilamennskan var mjög skemmtileg. Frímann átti 29 ára afmæli og mætti með veitingar sem gengu vel í mannskapinn. Úrslitin í fásveitakeppninni urðu: 1. Gissur Gissurarson - Hans Viggó +41 impi 2. Björn Þorláksson - Frímann Stefánsson +19 impar 3. Sveinbjörn Sigurðsson - Sigurður Marteinsson -9 impar.
Halli Hampar Hangikjöti
Fyrir jól er við hæfi að spila upp á eitthvað gott í svanginn og hjá BA er hefð fyrir að spila upp á KEA hangikjöt og magál! Mótið er tvö aðskilin kvöld þar sem efsta par hvors kvölds er tryggt með hangikjöt auk þess pars sem hæst skor fær þar fyrir utan.
Górillur og Sunnudagsbridge BA í útrýmingarhættu
Mæting á spilakvöld Bridgefélags Akureyrar hefur verið dræm að undanförnu og sérstaklega á sunnudögum þar sem spilaðir hafa verið eins kvölds tvímenningar.
Fréttir frá BA
Nú er nýlokið þriggja kvölda hraðsveitakeppni Sparisjóðs Norðlendinga en Sveinar sem reynar héldu fyrsta sætinu þrátt fyrir nokkra dýfu í lokaumferðunum þar sem þeir töpuðu m.
Minningarmót um Gísla Torfason
Minningarmót Gísla Torfasonar var haldið um helgina með þátttöku 43 para. Vegleg peningaverðlaun fyrir 5 efstu sætin og glæsileg aukaverðlaun. Ómar Olgeirsson og Páll Þórsson sigruðu eftir harða baráttu við gamalreynda tvímenningsjaxla.
Yngri spilarar - Bridge og pizza - Brizza
St�rfiskaleikur yngri spilara f�r fram 30.n�vember. Mikil spenna var � lokaumfer�inni og �ttu 4 p�r m�guleika � sigri. Efstu yngri spilararnir fengu bridgeb�kur � ver�laun og st�rfiskarnir kaffikort! 1 �ttar Ingi Oddsson - Bjarni Einarsson 77 2 Gr�mur Kristinsson - Hermann Fri�riksson 77 3 J�hann Sigur�arson - Kristinn ��risson 76 4 Hrefna J�nsd�ttir - Gu�laugur Sveinsson 72 Fleirir myndir h�r St�rfiskaleikur ver�ur n�sta mi�vikudag 30.n�vember kl.
Hraðsveitakeppni Sparisjóðs Norðlendinga
Ágætis byrjun Nafn plötu Sigurrósar á vel við upphaf Hraðsveitakeppni Sparisjóðs Norðlendinga sem hófst síðastliðinn þriðjudag. Nöfn sveitanna eru býsna óvenjuleg en úr þeim geta glöggir lesendur greint nöfn sumra spilaranna en sveitirnar eru: Haukur sem grét, Sveinbirningar, Unaður jóna, Sveinar sem reyna, Ævarandi árnaðaróskir og Heiðbrún lillabinna.
Bridgefélag yngri spilara
Þann 16.nóvember var spilaður 9 para tvímenningur og fóru leikar þannig að Inda Hrönn Björnsdóttir og Gabríel Gíslason unnu með yfir 80% skor!! Röð Spilarar Skor % Bronsstig 1 Inda - Gabríel 77 80,2 18 2 Guðjón - Óttar 50 52,1 12 3 Ingó - Jói 49 51,0 9 4 Hrefna - Elva 48 50,0 5 Guðný - Valur 45 46,9 6 Nanna - Ingibjörg 44 45,8 7 Eva - Esther 41 42,7 8 Lísa - Arna 40 41,7 9 Tíana - Sandra 38 39,6 Yngri spilara æfingar eru á miðvikudögum í vetur í Síðumúla 37, 3.hæð.
Fréttir frá Bridgefélagi Akureyrar
Akureyrarmeistarar í tvímenningi krýndir! Síðastliðinn þriðjudag lauk Akureyrarmótinu í tvímenningi og var lokakvöldið gríðarlega spennandi.
Fréttir frá félögum
Hér er meiningin að félögin geta komið frá sér fréttum sem eiga ekki heima á forsíðu. T.d. fréttir af sigurvegurum hverrar keppni, auglýsingar um sérstakar keppnir eða myndir/sögur af skemmtilegum eða sögulegum atvikum hjá félaginu.