Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
miðvikudagur, 31. maí 2006

Sumar loksins komið á Akureyri

Sumar loksins komið Hér á Akureyri er komið sumar og snjór óðum að hverfa úr görðum. En sumar þýðir auðvitað líka að B.A. spilar á þriðjudögum kl 19:30 og 23.maí urðu efstir: 1. Reynir Helgason - Björn Þorláksson +8 2. Gissur Gissurarson - Viggó Reisenhus +5 3. Stefán Vilhjálmsson - Guðmundur V.

þriðjudagur, 23. maí 2006

Ómar Olgeirsson og Rúnar Gunnarsson með RISAskor í Sumarbridge!!

Rúnar Gunnarsson og Ómar Olgeirsson byrjuðu Sumarbridge 2006 með glæsilegu skori, 69,6%. Þetta er með hærri skorum sem hefur náðast þegar spilaður hefur verið Monrad Barómeter.

miðvikudagur, 17. maí 2006

Bridgefélag Reykjavíkur - Einmenningur og bronsstigauppgjör

Einmenningsmót BR fyrir bronsstigahæstu spilara BR í vetur fór fram þriðjudaginn 16.maí. Veglegt gjafabréf frá Heimsferðum fyrir sigurvegarann!! Einnig voru veitt verðlaun fyrir stigahæsta spilara vetrarins, efstu konuna og yngri spilarann.

þriðjudagur, 16. maí 2006

Jón Stefánsson og Magnús Sverrisson unnu lokakvöld Mánudagsklúbbsins

Jón Stefánsson og Mangús Sverrisson skutust í efsta sætið í lokaumferðinni og unnu sér inn gjafabréf á veitingastaðinn Lauga-Ás. Ísak Örn Sigurðsson og Halldóra Magnúsdóttir voru í 2. og fengu þau gjafakörfu frá SS sem og Rúnar Gunnarsson og Hermann Friðriksson sem voru dregnir út af handahófi.

þriðjudagur, 9. maí 2006

Rúnar og Hermann skutust á toppinn í síðustu umferð!

Rúnar Gunnarsson og Hermann Friðriksson toppuðu á réttum tíma í Mánudagsklúbbnum og unnu sér inn gjafakörfu frá SS. Þeir enduðu 2 stigum fyrir ofan Óttar og Ara með +26 sem jafngildir 59.3% skori.