Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
þriðjudagur, 27. júní 2006

SumarBRIDGE 2006: Svala og Stefán unnu 20 para tvímenning!!

Svala Pálsdóttir og Stefán Garðarsson unnu 20 para tvímenning í Sumarbridge 2006.

mánudagur, 19. júní 2006

Stórmót Bridgefélags Menntaskólans að Laugarvatni

Bridgemót NEMEL 28 manns mættu til leiks á Nordica á 16.júnímót Bridgefélags Menntaskólans að Laugarvatni. Skemmtu spilarar sér konunglega og menn voru sammála um það að hafa þetta árlegan viðburð, 16.júní.

þriðjudagur, 13. júní 2006

AÐALFUNDUR BRIDGEFÉLAGS REYKJAVÍKUR

Aðalfundur Bridgefélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 14. júní nk. klukkan 17:30 í húsnæði BSÍ að Síðumúla 37. 3. hæð. Á dagskrá eru lagabreytingar og venjuleg aðalfundarstörf.

þriðjudagur, 13. júní 2006

Sumarbridge: Gulli Sveins og Maggi unnu Gabríel og Villa JR með einu stigi!!

Guðlaugur Sveinsson og Magnús Sverrisson unnu Gabríel Gíslason og Vilhjálm Sigurðsson JR með einu stigi. Þetta var flott skor hjá báðum pörum, 62,5% og 62,3%.

laugardagur, 10. júní 2006

Sumarbridge: Gabríel Gíslason og Gísli Steingrímsson með 60.4% skor!

Gabríel Gíslason og Gísli Steingrímsson unnu 14 para tvímenning í Sumarbridge með rétt rúmlega 60% skor. Það er ekki á hverjum degi sem 13 ára spilarar vinna tvímenningsmót og auk þess rétt missti hann af 1. sæti í Miðnætursveitakeppninni.

fimmtudagur, 8. júní 2006

Sumarbridge: Jóhann Stefánsson og Birkir Jónsson unnu 28 para tvímenning!

Glæsileg þátttaka var í Sumarbridge miðvikudaginn 7. júní. 28 pör mættu til leiks og hlutskarpastir voru Jóhann Stefánsson og Birkir Jónsson með +90 sem jafngildir 62.4% skori.

fimmtudagur, 1. júní 2006

Sumarbridge: Snorri og Ingólfur leiddu allt kvöldið og unnu!!

Snorri Sturluson og Ingólfur Hlynsson leiddu allt kvöldið í Sumarbridge og stóðu uppi sem sigurvegarar með +37 sem jafngildir 59.4% skori. Næstar voru Inga Lára Guðmundsdóttir og Unnur Sveinsdóttir.