Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
miðvikudagur, 29. nóvember 2006

Miðvikudagsklúbburinn: Erla og Lovísa í banastuði með 61,4%

Erla Sigvaldadóttir og Lovísa Jóhannsdóttir unnu 18 para tvímenning 29. nóvember. Þær skoruðu 61,4% og fengu í verðlaun körfur frá osta og smjörsölunni.

miðvikudagur, 29. nóvember 2006

BR - Guðmundur Sv. Hermannson og Helgi Jóhannsson lang efstir í Cavendish tvímenningi

30 pör taka þátt í Cavendish tvímenningi hjá Bridgefélagi Reykjavíkur. Guðmundur Sv. Hermannsson og Helgi Jóhannsson eru lang efstir eftir fyrsta kvöld af þremur.

miðvikudagur, 29. nóvember 2006

Vantar par til að fylla yfirsetu hjá BR

Nú vantar par til að fylla yfirsetu í Cavendish-tvímenning BR sem hófst þann 28.11. Tvö kvöld eru eftir.  Þeir er óska eftir þátttöku í mótinu snúa sér til Björgvins í síma 860-2023.FYRSTIR KOMA, FYRSTIR FÁ.

mánudagur, 27. nóvember 2006

Bridgefélag Selfoss - Hraðsveitakeppni hafin og Sigfúsarmótið búið

Sigfúsarmótinu lauk 16. nóvember sl. með öruggum sigri Guðjóns Einarssonar og Björns Snorrasonar. Í öðru sæti urðu Guðmundur Gunnarsson og Daníel Már Sigurðsson og í þriðja sæti Þröstur Árnason og Ríkharður Sverrisson.

föstudagur, 24. nóvember 2006

Akureyrarmeistarar í tvímenningi

Síðastliðinn þriðjudag lauk fjögurra kvölda Akureyrarmóti í tvímenningi 2006 en það var afar spennandi. Efstu tvö pörin skoruðu gríðarlega seinni tvö kvöldin en nýkrýndir meistarar voru aðeins einu sinni í efsta sæti í mótinu en það var eftir síðustu setu! Lokastaða: 1. Reynir Helgason - Frímann Stefánsson - Haukur Harðarson +81 2. Jónas Róbertsson - Pétur Guðjónsson +79 3. Stefán Vilhjálmsson - Hermann Huijbens - Guðmundur Gunnlaugsson +48 4. Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson +41 5. Sigurður Erlingsson - Sigurður Björgvinsson - Hjalti Bergmann +36 Frammistaða 4. kvöldið: 1. Reynir Helgason - Frímann Stefánsson +41 2. Jónas Róbertsson - Pétur Guðjónsson +24 3. Stefán Sveinbjörnsson - Ragnheiður Haraldsdóttir +18 4. Valmar Valjoets - Pétur Gíslason +8 5.

fimmtudagur, 23. nóvember 2006

Miðvikudagsklúbburinn: Jón og Rúnar unnu 21 para tvímenning!!

Jón Ingþórsson og Rúnar Gunnarsson voru efstir meðal jafningja hjá Miðvikudagsklúbbnum 22. nóvember. Þeir unnu 21 para tvímenning, en aðeins munaði 2,4% niður í 6. sæti.

miðvikudagur, 22. nóvember 2006

Dröfn og Hrund efstar hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar

Verið er að spila Aðaltvímenning BH.Staðan eftir  1 kvöld af 4 er:Hrund Einarsdóttir            -           Dröfn Guðmundsdóttir      18Gunnlaugur Sævarsson     -           Hermann Friðriksson         14         Atli Hjartarson                 -           Hafþór Kristjánsson           10Guðlaugur Sveinsson        -           Halldór Þorvaldsson            3 Friðþjófur Einarsson         -           Guðbrandur Sigurbergsson   2 Aðrir undir miðlung Keppnin heldur áfram næsta mánudag.

miðvikudagur, 22. nóvember 2006

BR - Öruggur sigur Hermanns Friðrikssonar í hraðsveitakeppni

Sveit Hermanns Friðrikssonar sigraði með nokkrum yfirburðum í hraðsveitakeppni BR en sveitin fékk hæsta kvöldskorið öll þrjú kvöldin! Í sveitinni spiluðu Hermann Friðriksson, Ómar Olgeirsson, Hlynur Angantýsson, Vilhjálmur Sigurðsson jr.