Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
miðvikudagur, 28. febrúar 2007

Miðvikudagsklúbburinn: Alda og Stefanía unnu með 62,6%

Alda Guðnadóttir og Stefanía Sigurbjörnsdóttir unnu sér inn gjafabréf á veitingastaðinn Lauga-Ás með glæsilegum sigri hjá Miðvikudagsklúbbnum. Sigfús Þórðarson og Guðni Ingvarsson náðu 2. sæti með 57,3% og fengu að launum úttekt hjá SS og gjafabréf hjá Lauga-Ás.

miðvikudagur, 28. febrúar 2007

Guðni Ingvarsson og Loftur Pétursson leiða í Butlerkeppni BH

Guðni Ingvarsson og Loftur Pétursson hafa náð góðri forustu í Butler keppni BH með 92 impa í plús.Næstu pör eru með 63 í plús eða minna.

miðvikudagur, 28. febrúar 2007

Heilsuhornstvímenning lokið hjá B.A.

Heilsuhornstvímenning lokið Hermann Huijbens og aðrir eigendur Heilsuhornsins hafa undanfarin ár styrkt eitt mót hjá B.A. með glæsilegum vinningum  en því er nýlokið.

föstudagur, 23. febrúar 2007

Aðalsveitakeppni BR hefst næsta þriðjudag

Næsta þriðjudag, 27. febrúar, hefst 5 kvölda aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur. Spilaðir verða tveir 16 spila leikir á kvöldi. Spilað er að venju í Síðumúla 37 og hefst spilamennska kl.

miðvikudagur, 21. febrúar 2007

Miðvikudagsklúburinn: Guðrún Jörgensen og Guðlaugur unnu gjafabréf á Lauga-Ás

Guðrún Jörgensen og Guðlaugur Sveinsson unnu kvöldið með 1 stigi meira en Magnús Sverrisson og Halldór Þorvaldsson. Guðrún og Guðlaugur unnu sér inn gjafabréf á Lauga-Ás og Magnús og Halldór fengu gjafabréf hjá SS.

miðvikudagur, 7. febrúar 2007

Miðvikudagsklúbburinn: Guðni Ingvarsson og Guðlaugur Bessason með 64,7% skor!

Guðni Ingvarsson og Guðlaugur Bessason unnu sér inn glæsileg gjafabréf með góðu skori í Miðvikudagsklúbbnum. Þeir voru efstir með 64,7%. Næstir voru Halldór Ármannsson og Gísli Sigurkarlsson með 62,5% og fengu þeir hágæða plastbspil og glaðining frá Sambó.

þriðjudagur, 6. febrúar 2007

Sveit Högna Friðþjófssonar sigraði mjög örugglega hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar

Lokastaðan eftir 7 umferðir ( 4 efstu) : 1. Högni Friðþjófsson          1452. Guðlaugur Bessason       1203. Hulduherinn                    1134. Hrund Einarsdóttir          104 Sannarlega glæsilegur árangur hjá sveit Högna.

þriðjudagur, 6. febrúar 2007

BR - 3ja kvölda bötler

Mikil spenna var fyrir síðustu umferð í bötlertvímenningi BR en 4-5 pör áttu möguleika á að vinna. Daníel Már Sigurðsson og Stefán Jóhannsson fengu góða setu og stóðu uppi sem sigurvegarar.