Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
fimmtudagur, 26. apríl 2007

Alfreðsmót og Norðurlandsmót

Alfreðsmót og Norðurlandsmót Miklar sviftingar urðu á lokakvöldi Alfreðsmótsins í impatvímenningi en þegar reykurinn hafði dreift sér höfðu Hermann og Stefán tekið mikið hástökk og náð hæsta skori allra fyrir stakt kvöld sem dugði þeim til sigurs.

fimmtudagur, 26. apríl 2007

Miðvikudagsklúbburinn: Magnús og Halldór með 65,5% skor í 20 para tvímenning

Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson unnu einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum með glæsilegu skori, 65,5%. Í 2. sæti urðu Óttar Ingi Oddsson og Sigurður Björgvinsson með 61,5%.

fimmtudagur, 19. apríl 2007

Bridgefélag Hafnarfjarðar heldur sína lokakeppni á þessu starfsári næsta mánudag 23. Apríl.

Það er sérstaklega mikilvægt að þeir sem koma með í keppnisferðina til Spánar mæti því farið verður yfir ferðatilhögun og fleira. Spilaður verður eins kvölds tvímenningur að því loknu.

miðvikudagur, 18. apríl 2007

Halldór Svanbergsson og Guðlaugur Bessason með 65,1% skor!!

Halldór Svanbergsson og Guðlaugur Bessason gerðu sér lítið fyrir og náðu 65,1% skori í Miðvikudagsklúbbnum. Þeir voru 5% á undan næsta pari, Halldóri Ármannssyni og Gísla Sigurkarlssyni,  sem þó fengu 60,1%  skor.

miðvikudagur, 18. apríl 2007

Alfreðsmót B.A.

Alfreðsmót B.A. Nú er impamótið komið vel á veg en annað kvöld keppninnar einkenndist af miklum sveiflum og nokkur pör skutust á toppinn þó Pétur og Björn hafi með góðum endaspretti náð dágóðu forskoti.

miðvikudagur, 11. apríl 2007

Alfreðsmótið hafið

Alfreðsmótið hafið Síðasta stóra mót vetrarins er hafið hjá Bridgefélagi Akureyrar en það er Alfeðsmótið í impatvímenningi sem er eitt af skemmtilegri mótunum að margra mati.

þriðjudagur, 3. apríl 2007

Einmenningsmeistari B.A. 2007

Einmenningsmeistarinn 2007 �ri�judaginn 3.apr�l f�r fram �ri�ja og s��asta kv�ldi� � einmenningi B.A. �ar sem �rslit r��ust en tv� bestu kv�ldin af �remur giltu.