Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
miðvikudagur, 20. júní 2007

Sumarbridge: Hermann og Hlynur efstir í 18 para tvímenning!

Hermann Friðriksson og Hlynur Angantýsson skutust á toppinn í síðustu umferð og fengu fína skor, 63,6%. Jöfn í 2. sæti voru Páll Valdimarsson og Eiríkur Jónsson og Erla Sigurjónsdóttir og Sigfús Þórðarson með 62,7%.

mánudagur, 11. júní 2007

Bridgemót á Grand Hotel 16.júní

14 pör mættu til leiks á Grand Hotel laugardaginn 16.júní. Skemmtu spilarar sér vel og var mikil spenna um efstu sæti. Efstu pör: 1. Þröstur Ingimarsson - Ragnar Jónsson                 62,3% 2. Ísak Örn Sigurðsson - Guðmundur Baldursson    61,6% 3. Guðlaugur Sveinsson - Sveinn Rúnar Eiríksson    54,3 4. Kjartan Ingvarsson - Halldór Úlfar Halldórsson   54,2% 5. Halldór Svanbergsson - Guðlaugur Bessason       52,5% 6. Torfi Rúnar Kristjánsson - Hjálmar S.

þriðjudagur, 5. júní 2007

Nýtt húsnæði B.A. !

Bridgefélag Akureyrar er komið í nýtt og magnað húsnæði og Sumarbridge er hafið af krafti. Nýja aðstaðan er í glæsilegum sal Lionsklúbbsins Hængs við Skipagötu og er ekki hægt að segja annað en að fyrsta Sumarbridsið þar hafi heppnast með miklum ágætum.

föstudagur, 1. júní 2007

Guðrún og Unnar Atli unnu 17 para tvímenning með 60,8% skor

Guðrún Jóhannesdóttir og Unnar Atli Guðmundsson unnu einskvölds tvímenning í Sumarbridge með 60,8%. Næstir voru Páll Valdimarsson og Eiríkur Jónsson með 59,7% og Eggert Bergsson og Baldur Bjartmarsson með 59,2%.