Fréttir - 2007 - 07
fimmtudagur, 19. júlí 2007
Sumarbridge á Akureyri
Alla þriðudaga í sumar er spilað bridge í hinu nýja og flotta húsnæði Bridgefélags Akureyrar í Lions salnum við Skipagötu. Mæting tók kipp við flutninginn þrátt fyrir að margir væru í sumaleyfum þar á meðal fréttaritarinn.
miðvikudagur, 4. júlí 2007
Sumarbridge: Inda og Grímur með yfir 67% tvö kvöld í röð!!
Inda Hrönn Björnsdóttir og Grímur Kristinsson náðu þeim einstaka árangri að skora yfir 67% 2 spilakvöld í röð í Sumarbridge 2007. Glæsilegur árangur og menn eru spenntir hvort þau nái að toppa 67% næsta spilakvöld sem þau mæta! Erla Sigurjónsdóttir og Sigfús Þórðarson eru efst í bronsstigum í sumar.