Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
föstudagur, 30. nóvember 2007

Akureyrarmót í tvímenningi

Pétur og Jónas á toppinn Að hálfnuðu móti hefur röð efstu para breyst nokkuð eftir sviftingar síðasta spilakvölds. Pétur Guðjónsson og Jónas Róbertsson skoruðu mest og náðu efsta sætinu af Helga Steinssyni og Gylfa Pálssyni.

fimmtudagur, 29. nóvember 2007

Miðvikudagsklúbburinn: Ásdís Matthíasdóttir og Þórey Eiríksdóttir efstar með 59.9%

Ásdís Matthíasdóttir og Þórey Eiríksdóttir efstar með 59,9% Í 2. sæti voru Inda Hrönn Björnsdóttir og Svala Pálsdóttir með 55.2% og í 3. sæti Eggert Bergsson og Kolbrún Guðveigsdótti Efsta parið fékk flottar ostakörfur frá Osta og smjörsölunni 2.

fimmtudagur, 29. nóvember 2007

Bf. Hafnarfjarðar: Sveit Indu með öruggan sigur!!

Sveit Indu sigraði Hraðsveitakeppni BH með +109. Sveit Guðlaugs Sveit Guðlaugs Sveinsson var í 2. sæti með +23 og sveit Sigurðar Sigurjónsson í 3.sæti með +17Í sveit Indu spiluðu: Inda Hrönn Björnsdóttir, Grímur Kristinsson, Jóhann Sigurðason og Gabríel GíslasonÖll úrslit hægt að nálgast á heimasíðu BH   Næsta keppni félagsins er Aðalsveitakeppni.

þriðjudagur, 27. nóvember 2007

Bridgefélag Reykjavíkur - Cavendish-tvímenningur að hefjast í kvöld!

3ja kvölda Cavendish tvímenningur(imps across the field) hefst hjá Bridgefélagi Reykjavíkur í kvöld! Þetta spilaform hefur verið gríðarlega vinsælt undanfarin ár og mikið um sveiflur og fjör.

miðvikudagur, 21. nóvember 2007

Miðvikudagsklúbburinn: Ragnheiður Nielsen og Ómar á toppnum!

Ragnheiður Nielsen og Ómar Olgeirsson unnu einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum með 64.7% skor. Fengu þau ostakörfur frá Osta og Smjörsölunni í verðlaun.

miðvikudagur, 21. nóvember 2007

Sveit Sigurðar Sigurjónssonar efst í Hraðsveitakeppni BH

Sveit Sigurðar Sigurjónssonar er efst eftir eitt kvöld af tveimur í Hraðsveitakeppni BH. Með Sigurði spiluðu Halldór Einarsson, Guðbrandur Sigurbergsson og Ásgeir Ásbjörnsson.

miðvikudagur, 21. nóvember 2007

Bændur í stuði

Bændur í stuði hjá B.A. Akureyrarmót í tvímenningi, fjögurra kvölda barometer, hófst hjá B.A. á þriðjudagskvöldið með þátttöku 14 para. Spiluð verður tvöföld umferð.

miðvikudagur, 21. nóvember 2007

Hraðsveitakeppni BR lokið

Sveit kennd við Pál Þórsson kennara vann hraðsveitakeppni BR.  Í öðru sæti kom sveit kennd við Pál Valdimarsson línumann.  Í þriðja sæti sveit Grant Thornton Bókara.