Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
miðvikudagur, 28. maí 2008

Sumarbridge 2008: Baldur og Einar efstir af 26 pörum!!

Einar Oddsson og Baldur Bjartmarsson unnu 26 para tvímenning með 62,4% skor. Jón Ingþórsson og Vilhjálmur Sigurðsson jr voru næstir með 61,6%.

miðvikudagur, 28. maí 2008

BA-Norðurlandsmótið

Norðurlandsmót í tvímenningi 2008   Norðurlandsmótið var spilað 1. maí í góðu yfirlæti í Félagsheimilinu Rimum í Svarfaðardal með þátttöku 16 para.

miðvikudagur, 14. maí 2008

Miðvikudagsklúbburinn: Guðlaugur og Baldur voru á 1. borði allt kvöldið!!

Guðlaugur Sveinsson og Baldur Bjartmarsson unnu 22 para tvímenning með glæsilegt skor, 61,1%. Þeir fengu að launum 2 ostakörfur. Soffía Daníelsdóttir og Alda Guðnadóttir voru í 2. sæti með 59,6% og fengu eðalkonfekt að launum.

miðvikudagur, 14. maí 2008

Fjarðarbyggð - sumarbridge í sumar

Bridgefélag Fjarðarbyggðar ætlar að spila alla þriðjudaga í sumar á ReyðarfirðiSpilamennska hefst kl. 19:30 og spilað verður í húsi verkalýsfélags Reyðarfjarðar.

miðvikudagur, 7. maí 2008

Miðvikudagsklúbburinn: Guðlaugur Bessason og Sigurður Sigurjónsson unnu 30 para tvímenning!

Guðlaugur Bessason og Sigurður  Sigurjónsson unnu einskvölds tvímenning með þátttöku 30 para. Þeir félagar voru með 62,1%. Í öðru sæti voru Páll Þórsson og Ómar Olgeirsson með 60,1%.

miðvikudagur, 7. maí 2008

Einmenningur BR og Iceland Express

                                                           Einmenningsmeistari BR 2008 er �sak �rn Sigur�sson.

mánudagur, 5. maí 2008

Vorkvöld í Bridgefélagi Kópavogs

Síðasta spilakvöld vetrarins hjá BK verður eins kvölds tvímenningur fimmtudaginn 8. maí. Þá fer fram verðlaunafhending fyrir helztu keppnir vetrarins og eru allir velkomnir.