Fréttir - 2016 - 04
Gulli Karls og Ásmundur efstir í Kópavogi NÝ BRONSSTIGASTAÐA
Í kvöld fór fram annað kvöldið af þremur í Vortvímenningi Bridgefélags Kópavogs. Júlíus Snorrason og Eiður Júlíusson náðu besta skorinu en Gunnlaugur Karlsson og Ásmundur Örnólfsson eru hins vegar með eins stigs forystu samanlagt.
HB Granda mótið á Vopnafirði
HB Granda tvímenningsmótið á Vopnafirði. Verður haldið 30. apríl 2016 í Miklagarði á Vopnafirði. Það hefst kl. 11.00 og er þáttkökugjald 4.000 á par og er kaffi og meðlæti innifalið í keppnisgjaldi.
Heiðar og Logi unnu Davíðsmótið í Dölum vestur
Hið árlega Davíðsmót, til minningar um Davíð Stefánsson á Saurhóli í Saurbæ var haldið í dag. Borgfirðingarnir Heiðar Baldursson og Logi Sigurðsson gerðu góða ferð í Dalina, fyrst með því að húkka sér far með keppnisstjóranum og síðan með því að koma klifjaðir verðlaunum til baka eftir harða baráttu við bikarhafana frá í fyrra, bræðurna Odd og Árna Hannessyni.
Gulli Karls og Ásmundur efstir í Kópavogi
Fyrsta kvöldið af þremur í vortvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Öll úrslit hér.
Rangæingar -- Vertíðarlok
Að vanda héldum við Rangæingar okkar lokakvöld síðasta vetrardag að Heimalandi. Förum þá yfir veturinn, afhendum snarlega þeim verðlaun sem þau verðskulda og setjumst svo við spil, enda leiðist okkur fremur fundaseta en gleðjumst mjög við spil.
Síðasta keppni vetrarins í Kópavogi hefst í kvöld
Síðasta keppni vetrarins hjá Bridgefélagi Kópavogs er þriggja kvölda vortvímenningur þar sem tvö bestu kvöldin telja til verðlauna. Matchpoint og frjáls mæting.
Síðasta spilakvöld vetrarins.
Í kvöld verður síðasta spilakvöld vetrarins hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar. Við viljum þakka spilurum fyrir þáttökuna í vetur. Aðalfundur félagsins verður auglýstur síðar.
Hjónin Þuríður Ingólfsdóttir og Pálmi Kristmannsson unnu Halamótið 2016
Hjónin frá Egilstöðum, Þuríður Ingólfsdóttir og Pálmi Kristmannsson unnu Halamótið 2016 með aðeins 0,1% mun. Öll úrslit hér.