Það var létt yfir Rangæskum spilurum sl. þriðjudag, enda ölkvöld þar sem veitt er blautleg verðlaun fyrir alla flokka. 13 pör mættu til leiks og léku 28 spila Barómeter.
Verðlaunahafar:
Heiðurssætið: Öryggir sigurvegarar með 35,8% skor. Sigurjón og Sigurður sýslumannsfrú. Þeir félagar vissu að vísu fyrir að fyrir þetta sæti fást aukaverðlaun, 2 dósir. Settu því stefnuna strax á þetta sæti, enda finnst þeim appelsín góður drykkur. Þeim varð ekki ógnað og sætið var aldrei í hættu.
Vonbrigði kvöldsins: Þann flokk unnu Skógabóndinn og vertinn nokkuð sannfærandi með 42,1% skor. Fleiri gerðu þó tilkall til þessara verðlauna og þó nærri lægi, náði enginn að bæta þennan glæsilega árangur þeirra bræða.
Njáluflokkur: Runólfur og Óli, 43,3% skor. Einir í þessum flokki, svo þeir áttu sætið víst.
Gamlir sótraftar: Á sjó voru dregnir a.m.k. tveir gamlir sótraftar þetta kvöld. Ekki var erfitt að fá þá að borðinu það kvöldið, enda öl í boði. Sigurvegarar með 44,2% skor, þeir Biggi og Tottenhamtröllið ógurlega. Tröllið vill enginn hitta í myrkri, frekar en önnur troll, og allra síst við Arsenalmenn sem megum muna okkar fífil fegri. Orðinn hnípinn og sölnaður.
Kvennaflokkur: Kanastaðabændur unnu flokkinn örugglega, enda Sólveig eina konan í hópnum. Eiríkur grásleppur í flokkinn, enda skegglaus, eins og sveitungi hans Njáll var forðum. 47,1% skor.
Kráarspilarar frá Hull og Grimsby: Skipstjórinn kom heim, sá og sigraði þennan flokk, eftir langdvalir í Hull. Er á leið á næsta mót kráarspilara, sem haldið verður í Cuxhaven í vor. 49,3% skor.
Tottenhamsætið: Niðurlægjandi fyrir Arsenal mann að lenda í Tottenhamsætinu, þ.e. með minnsta mínusinn frá 50% skori. Sigurvegarar af talsverðu öryggi, Sigurður og Torfi, 49,6% skor. Bestir í annari deild.
Nýliðaflokkur: Minkabændurnir úr Neðra-Dal mættu pelsklæddir til leiks og unnu flokkinn glæsilega, 50,0% skor.
Menn á uppleið: Elli og Kalli komu sterkir inn í þennan flokk, voru á uppleið allt kvöldið eftir vonda fyrstu setu, 52,9% skor.
Og þá er komið að stóru stákunum:
4. sætið: Karl og Jói. Báðir vanir hestamenn, þó það komi þessu nú ekki við. 53,2% skor.
3. sætið: Prestakallarnir, Hallldór og Kristján, 55,4% skor. Meðhjálparinn las ritningarorðin af festu og presturinn fylgdi þeim eftir með þrumandi predikun. Söfnuðurinn lét glaður stig af hendi rakna.
2. sætið: Grimm-bræður. Nýtt ævintýri í hverri viku. "Ég er orðinn svo góður að það liggja allar svíningar hjá mér og engin vötn falla til Dýrafjarðar lengur, bara bjór í baukinn minn" sagði Svavar og tók við verðskulduðu magni af bjórbaukum.
1. sætið: Hæglætismennirnir og alþýðuhetjurnar Björn og Eyþór, 64,3% skor.
Úrslit og spil má sjá hér
Næsta þriðjudag hefst aðaltvímenningur félagsins, Samverkstvímenningurinn.