Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
laugardagur, 28. apríl 2018

Vorhátíð Krummaklúbbsins

Krummaklúbburinn tekur á móti stjörnuliði Dennu á vorhátíð félagsins.   Báðir hópar eru með 10 sveitir og verða spilaðar 4 eða 5 umferðir eftir því sem tíminn leyfir.

fimmtudagur, 26. apríl 2018

Loftur og Kristín efst í Kópavogi

Fyrra kvöldið af tveimur í Vortvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Kristín Þórarinsdóttir og Loftur Pétursson urðu efst með 62,2% og standa vel að vígi fyrir lokakvöld vetrarins sem verður spilað fimmtudaginn 03. maí.

fimmtudagur, 19. apríl 2018

Bernódus og Ingvaldur unnu Impakeppni Bakarameistarans

Þriðja og síðasta kvöldið í Impakeppni Bakarameistarans var spilað í kvöld. Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson náðu besta skori kvöldsins með 81 impa í plus og enduðu sem sigurvegarar samanlagt með 83 impa í plus.

fimmtudagur, 19. apríl 2018

Rangæingar -- Lokahóf

Síðasta vetrardag komum við Rangæingar saman á varaheimavelli okkar, Gunnarshólma í A-Landeyjum, og héldum árlegt lokahóf okkar.    Byrjuðum á því að veita verðlaun fyrir veturinn og lékum að því loknu 28 spila monrad barometer með þátttöku 14 para.

mánudagur, 16. apríl 2018

Briddsfélag Selfoss

Brynjólfur og Helgi sigruðu þriggjakvölda tvímenning sem lauk síðastliðinn fimmtudag. Var forysta þeirra örugg. Næstir á eftir þeim vour Guðmundur Höskuldur.

sunnudagur, 15. apríl 2018

Jón Halldór Guðmundsson og Einar Hólm Guðmundsson unnu Halamótið

Hrossakjötsmótinu á Hala í Suðursveit lauk nú fyrir stundu með sigri Seyðfirðinganna Jóns Halldórs Guðmundssonar og Einars Hólm Guðmundssonar.

fimmtudagur, 12. apríl 2018

Ásmundur og Gunnlaugur efstir í Kópavogi

Eftir tvö kvöld af þremur í Impakeppni Bakarameistarans eru Ásmundur Örnólfsson og Gunnlaugur Karlsson efstir af þeim pörum sem hafa mætt bæði kvöldin.

miðvikudagur, 11. apríl 2018

Rangæingar -- Úrslitin ráðin

Nú höfum við Rangæingar lokið formlegri vetrardagskrá okkar.  Henni lauk sl. þriðjudag þegar við lukum við 5 kvölda Samverkstvímenning.    Þá eigum við einungis lokakvöldið eftir, sem við höldum nk.