Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
sunnudagur, 13. maí 2018

Kjördæmameistarar 2018

Lið Reykjavikur unnu Kjördæmamótið 2018 með 496,38 stig, fast á hæla þeirra kom lið Norðurlands eystra með 493,52 stig  og í þvi því þriðja voru gestgjafarnir á Norðurlandi vestra með 383,12 stig Sjá nánar um Kjördæmamótið hér vinstra megin    

föstudagur, 11. maí 2018

Júlíus Snorrason er Bronsstigameistari BK 2017-2018

Endanleg bronsstigastaða Bridgefélags Kópavogs veturinn 2017-2018 er komin á HEIMASÍÐUNA Eins og áður hafði komið fram á Fb-spjallinu er Julius Snorrason bronsstigameistari 2017-2018 með 420 stig.

föstudagur, 11. maí 2018

Matthías Þorvaldsson er bronsstigameistari BR 2017-2018

Bronsstigameistari Bridgefélags Reykjavíkur veturinn 2017-2018 er Matthias Gísli Þorvaldsson með 304 stig, 42 stigum meira en hans fasti maker Aðalsteinn Jorgensen.

þriðjudagur, 8. maí 2018

Skúli Skúlason er einmenningsmeistari BR

Einmenningur var spilaður á fimm borðum í kvöld. Skúli Skúlason bar sigurúr býtum með 60,2% skor. HEIMASÍÐAN Bridgefélag Reykjavíkur þakkar öllum þeim er mættu til spilamennsku í vetur.

laugardagur, 5. maí 2018

Árshátíð kvenna 5. maí 2018

44 pör taka þátt í árshátíð kvenna á Fosshóteli.

fimmtudagur, 3. maí 2018

Birna og Aðalsteinn unnu Vortvímenning BK

Starfsemi Bridgefélags Kópavogs lauk þetta vorið með Vortvímenningi þar sem Birna Stefnisdóttir og Aðalsteinn Steinþórsson báru sigur bítum með 115,3 stig sem er samanlögð prósentuskor tveggja kvölda.

fimmtudagur, 3. maí 2018

Öll bronsstig vetrarins hjá BR komin á heimasíðuna

Nú eru öll bronsstig vetrarins hjá Bridgefélagi Reykjavíkur komin á HEIMASÍÐUNA.

miðvikudagur, 2. maí 2018

Hótel Hamar vann Aðalsveitakeppni BR

Fimmta og síðasta kvöldið í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í gærkvöldi. Sveit Hótels Hamars hélt út og sigraði með að lokum með 12 stiga mun eftir tvö jafntefli og 17,68 sigur í síðustu umferðinni.