Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Minningarmót á Borgarfirði-Eystri

mánudagur, 9. júlí 2018
Kæru briddsarar nær og fjær.Helgina 25.-26. ágúst ætla Borgfirðingar að heiðra minningu fallins félaga sem kvaddi okkur alltof snemma í vetur. Minningamót Skúla Sveinssonar verður haldið í félagsheimilinu Fjarðarborg á Borgarfirði eystri. Að mótinu standa Já Sæll ehf (sem Skúli var einn eiganda að) og Briddssamband Austurlands. Spilaður verður tvímenningur og stefnt er að því að hafa peningaverðlaun en nánara fyrirkomulag verður auglýst síðar. Sveinn Rúnar Eiríksson verður keppnisstjóri.  Við munum spila á laugardegi fram að kvöldverði og minningar/sögustund og svo klárum við mótið tímanlega á sunnudegi svo allir komist með flugi heim um kvöldið.