Fréttir 2019
Dagskrá BK haustið 2019 komin á heimasíðuna
Nú styttist í að vetrarstarfsemi bridgefélaganna taki við af Sumarbriddsinu. Bridgefélag Kópavogs ætlar að hefja vetrarstarfið fimmtudaginn 12. September.
Spilað á 21 borði í Sumarbridds í kvöld
Metþátttaka var í Sumarbridge í kvöld en 41 par mætti til leiks. Árni Indriðason og Pétur Reimarsson urðu efstir með 65,9% skor.
Gróa Eiðsdóttir og Valgerður Eiríksdóttir unnu Árshátíð kvenna
Árshátíð briddskvenna var haldin í dag og byrjaði með frábærum 3ja rétta hádegisverði á Fosshóteli í Þórunnartúni. 96 konur mættu og spiluðu 36 spil og urðu Gróa Eiðsdóttir og Valgerður Eiríksdóttir hlutskarpastar með 59,9% skori.
Guðbrandur Sigurbergsson er Bronsstigameistari BK
Öll bronsstig vetrarins eru komin inn á heinmasíðu Bridgefélags Kópavogs. Bronsstigameistari BK 2018-2019 er Hafnfirðingurinn Guðbrandur Sigurbergsson.
Hjálmar og Diddi unnu Vortvímenning BK
Síðasta keppni vetrarins hjá Bridgefélagi Kópavogs var tveggja kvölda Vortvímenningur. Ásmundur Örnólfsson og Gunnlaugur Karlsson náðu besta skori kvöldsins með 64,3% en Sigurður Steingrímsson og Hjalmar S Pásson sigruðu samanlagt með 110% úr kvöldunum tveimur.