Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir - 2006 - 03

miðvikudagur, 29. mars 2006

Afmælismót Erlu Sigurjónsdóttur

Mánudagana 3. og 10. apríl verður haldið afmælismót Bridgefélagi Hafnarfjarðar í tvímenningi til heiðurs 70 ára afmælis Erlu Sigurjónsdóttur. Mæting er frjáls, annaðhvort annað eða bæði kvöldin.

þriðjudagur, 14. mars 2006

Búið að draga í riðla í Undanúrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni 2006

Áðan var dregið í riðla í Undanúrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni 2006.  Allar upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu mótsins: Íslandsmótið í sveitakeppni 2006 - Undanúrslit Takið svo þátt í spánni um hvaða sveitir komast áfram í úrslitin: Spáið í þessu!  .

mánudagur, 13. mars 2006

3 svæðamót í tvímenningi um næstu helgi

Þrjú svæðamót í tvímenningi fara fram um næstu helgi, Reykjanes, N-Vestra og Vesturland. Laugardaginn 18. mars fer fram svæðamót Reykjaness í tvímenningi og spilastaður er Hamraborg 11 og spilamennskan hefst klukkan 11:00. Sunnudaginn 19. mars verða svæðamót N.

mánudagur, 13. mars 2006

Suðurlandsmót í tvímenning 2006

Mótið var haldið 11. mars 2006 í golfskálanum á Strönd. Til leiks mættu 15 pör, og til að uppfylla skilyrði um 60 spiluð spil á hvert par, þá varð að spila 5 spil á milli para, alls 75 spil.

sunnudagur, 12. mars 2006

Svæðamót N-Eystra í tvímenningi

Laugardaginn 11.mars var Svæðamót N-E haldið á Akureyri með þáttöku 17 para en 6 pör fengu rétt til að fara suður. Baráttan og sveiflurnar voru miklar og gríðarleg spenna var þegar lokaumferðin stóð yfir Lokastaðan hjá efstu pörum: 1. Hákon Sigmundson - Kristján Þorsteinsson +84 2. Pétur Guðjónsson - Jónas Róbertsson +75 3. Pétur Gíslason - Valmar Väljaots +41 4. Frímann Stefánsson -Reynir Helgason +40 5. Þórólfur Jónasson - Þórir Aðalsteinsson +17 6. Þorsteinn Friðriksson - Rafn Gunnarsson +16 7. Sveinbjörn Sigurðsson - Magnús Magnússon +15 8.-10. Björn Þorláksson - Guðmundur Halldórson +5 8.-10. Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson +5 8.-10. Jón Sverrisson - Una Sveinsdóttir +5 Pétur og Jónas hafa gefið upp að þeir þiggi ekki sætið svo a.

laugardagur, 11. mars 2006

Reykjavíkurmótið í tvímenningi 2006

Nú er Reykjavíkurmótinu nýlokið með öruggum sigri Aðalsteins og Sverris Sjá úrslit

mánudagur, 6. mars 2006

Þrjú svæðamót í tvímenningi

Svæðamót í tvímenningi 11. mars 2006 Svæðasamböndin Reykjavík, Norðurland Eystra og Suðurland halda svæðamót sín í tvímenningi laugardaginn 11. mars næstkomandi.

mánudagur, 6. mars 2006

Meistarastig 2005

Samantekt � meistarastigum �rsins 2005, topplistar og n�lalista m� finna h�r Tengill vinstra megin � s��unni...

sunnudagur, 5. mars 2006

Sveit Emblu Íslandsmeistari kvenna í sveitakeppni 2006

Sveit Emblu varð Íslandsmeistari kvenna 2006 í sveitakeppni með 121 Vinningsstig í 7 leikjum. Með Emblu spiluðu Bryndís Þorsteinsdóttir, María Haraldsdóttir, Hrafnhildur Skúladóttir og Soffía Daníelsdóttir.

miðvikudagur, 1. mars 2006

Haukur í (Heilsu)horni

Haukur í (Heilsu)horni Þriðjudaginn 28.febrúar fór fram 2. kvöld af 3 í Heilsuhornstvímenningi Bridgefélags Akureyrar. Svo skemmtilega vill til að einn eiganda Heilsuhornsins leiðir mótið ásamt makker sínum.