Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

LANDSLIÐIN Í OPNA- OG KVENNAFLOKKNUM

miðvikudagur, 2. ágúst 2006

Ísland sendir tvö lið til leiks á EM í Póllandi 12.-26. ágúst nk. Opinn flokk og kvennaflokk.

Hægt að fylgjast með gengi Ísland hér

Landsliðið í opnum flokki er skipað Bjarna Einarssyni, Jóni Baldurssyni, Magnúsi Magnússyni, Matthíasi Þorvaldssyni, Sigurbirni Haraldssyni og Þorláki Jónssyni. Fyrirliði án spilamennsku er Björn Eysteinsson.

Landsliðið í kvennaflokki er skipað eftirtöldum spilurum: Arngunnur Jónsdóttir, Guðrún Jóhannesdóttir, Hrafnhildur Skúladóttir, Ragna Briem, Soffía Daníelsdóttir og Þóranna Pálsdóttir. Fyrirliði Kristján Blöndal.

Minnt er á útsendingar frá Evrópumótinu á Bridgebase.com. Hægt er að sækja forritið hér

Einnig verða sendir út leikir frá Swangames.com Hægt er að sækja forritið hér

Swangames mun einbeita sér að því að sýna frá leikjum Opna sænska liðsins, Opna íslenska liðsins og Heldra liði Dana