Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Greifarleg spenna hjá B.A.

þriðjudagur, 10. október 2006

Hið sívinsæla Greifamót B.A. er hafið en það er þriggja kvölda impatvímenningur.

Verðlaunahafar munu fá að skreppa út á borða á Greifann, eitt vinsælasta veitingahús norðan Holtavörðuheiðar svo til mikils er að vinna!

Enda komu spilarar allt frá Dalvík til Mývatns.

Eftir fyrsta kvöldið er staða efstu para:

1. Frímann Stefánsson - Reynir Helgason +38

2. Ævar Ármannsson - Árni Bjarnason +35

3. Soffía Guðmundsdóttir - Magnús Magnússon +21

4. Hans Viggó Reisenhus - Sveinbjörn Sigurðsson +20

5. Jónas Róbertsson - Pétur Guðjónsson +16

Sunnudaginn var afar jafnt en fór svo:

1. Gissur Jónasson - Gissur Gissurarson +8

2. Björn Þorláksson - Tryggvi Ingason +7

3. Hans Viggó Reisenhus - Sveinbjörn Sigurðsson +6