Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir - 2009 - 10

þriðjudagur, 27. október 2009

Íslandsmót eldri spilara í tvímenning

Jón Alfreðsson og Eiríkur Jónsson eru Íslandsmeistarar eldri spilara í tvímenning 2009. Þeir enduðu með +107,6 stig sem jafngildir 58,6%. 0,5 stigum á eftir þeim voru Garðar Garðarsson og Kristján Örn Kristjánsson, sem leiddu mótið frá 10. umferð.

föstudagur, 23. október 2009

Iceland Express deildin

Hin vins�la keppni Iceland Express deildin ver�ur � �r spilu�  24. og 25.okt�ber og 14.og 15.n�vember eins og � s��asta �ri ver�ur spila� � tveim deildum.

fimmtudagur, 22. október 2009

BSÍ og Iceland Express gera samstarfssamning til þriggja ára.

  Bridgesamband Íslands og Iceland Express gerðu með sér samstarssamning sem gildir til 3ja ára. Iceland Express verður aðalstyrktaraðili Bridge á Íslandi og fá nafni sínu bætt við helstu Íslandsmót sem BSÍ heldur.

miðvikudagur, 14. október 2009

Íslandsmótið í einmenning

Jón Hákon Jónsson er nýkrýndur Íslandsmeistari í einmenning. Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitilinn sem hann vinnur og óskar BSÍ honum til hamingju með sigurinn!   Í 2. sæti var Brynjar Jónsson og 3.

miðvikudagur, 14. október 2009

Ársþing BSÍ

Ársþing BSÍ verður haldið í húsnæði Bridgesambands Íslands sunnudaginn 18. október og hefst klukkan 12:00 að hádegi. Félög innan hreyfingarinnar hafa setu- og atkvæðisrétt á þinginu samkvæmt kvótaútreikningi skilagreina en áheyrnarfulltrúar eru velkomnir að sitja þingið.

miðvikudagur, 14. október 2009

Champions Cup - París 15-18.október

Fyrsti leikur að byrja núna kl. 14 á BBO Ísland - Ítalía (Fantoni-Nunes, Lauria-Versace, sigurliðið í fyrra)  Meistaradeild Evrópu (Champions Cup) hefst fimmtudaginn 15.október 2009 Landsmeistarar 10 efstu þjóða á síðasta Evrópumóti etja þar kappi.

föstudagur, 9. október 2009

íslandsmót kvenna í tvímenning 2009

Jöfnustu úrslit í íslandsmóti kvenna í tvímenning urðu núna. Sigurvegararar eru Bryndís Þorsteinsdóttir og María Haraldsdóttir með 801,9 stig með þeim á myndinni er yngismærin Embla Mey Thorarensen.