Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir - 2010 - 07

föstudagur, 30. júlí 2010

Chairmans Cup í Svíþjóð

3 íslensk lið héldu í morgun til Svíþjóðar að spila á sænska bridgefestivalinu. Aðalmótið er Chairmans Cup með þátttöku yfir 100 sveita! Byrjar það á laugardag, spilaðar eru 15 umferðir, 8 spila leikir.

föstudagur, 16. júlí 2010

Mótaskráin 2010-2011

Ný mótaskrá er komin fyrir spilaveturinn 2010-2011

mánudagur, 5. júlí 2010

Opnunartími skrifstofu í sumar

Skrifstofan verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með 5.júlí til 18.ágúst Hægt er að ná í Ólöfu í síma 898 7162 ef nauðsyn ber til.

laugardagur, 3. júlí 2010

Íslendingar í 4 sæti á EM

Íslendingar vorur að vinna Rússa 19-11 á EM í Bridge Okkar menn enduðu í 4 sæti með 289 stig og eru því á leið á HM í Hollandi 2011 Við óskum þeim innilega til hamingju með frábæran árangur í þessu móti.

laugardagur, 3. júlí 2010

Ísland - Rússland í dag 3.júlí

 Síðasti leikur Íslendinga er við Rússa kl.

föstudagur, 2. júlí 2010

Bein útsendinga úr leik Íslands og Rússlands

Bein útsending verður frá leik Íslendinga og Rússa kl. 10:15 laugardaginn 3.júlí Bjarni Einarsson og Sveinn R. Eiríksson lýsa leiknum. Allar upplýsingar um útsendinguna eru á Bridgetorgi BSÍ  Því miður var ekki hægt að vera með beina lýsingu útaf tæknilegum örðugleikum.

fimmtudagur, 1. júlí 2010

Leikir á EM föstudaginn 2.júlí

Leikir á EM föstudaginn 2.júlí Ísland - Ísrael            22- 8 Ísland - Portugal        21-9 Ísland - England        15-15 Íslendingar eru nánast öruggir um sæti á HM hastið 2011 sem haldið verður í Hollandi.

fimmtudagur, 1. júlí 2010

Opið hús í Síðumúlanum

Opið hús verður í Síðumúlanum laugardaginn kl. 10:00 Kaffi og kleinur.. Ómar Olgeirs ætlar að vera sýningarstjóri á BBO Horfum saman á okkar menn í síðasta leiknum á EM við Rússa.

fimmtudagur, 1. júlí 2010

1.júlí á Evrópumótinu

Íslendingar byrja á því að spila við Svía kl.