Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Bridge bætir heilsuna

fimmtudagur, 5. mars 2015

Bridge hefur oft verið nefnd erfiðasta hugaríþrótt í heimi. Það þarf mikla elju og æfingu til að verða góður í bridge. Nú hafa Danir fundið það út með rannsókn að bridge stuðlar að betri heilsu. Rökstuðningur er einkum þessi: "Bridge er byggt upp í kringum félagsskap annarra spilara og það er þessi félagslegi þáttur sem spilar svo þýðingarmikla rullu í sambandi við tenginguna að bridge skapar betri heilsu." Danir eru nú að hefja mikla rannsókn á þessu sem Anette Schulz stýrir, nánar má lesa um rannsóknina á slóð Danska Bridgesambandsins, sjá www.bridge.dk.
Það verður spennandi að fylgjast með þessu...