Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir - 2016 - 01

föstudagur, 29. janúar 2016

Sigurvegarar í tvímenning Bridgehátíðar

Sigurvegarar í tvímenning Bridgehátíðar 2016 er par sem kemur aftur og aftur á Bridgehátið frú Nevana Senior frá Englandi og hennar makker Rumen Trendafilov  með 58,4 % skor fast á hæla þeim voru Borgfirðingarnir Sveinbjörn Eyjólfsson og Lárus Pétursson með 57,9 % og í 3ja sæti voru hjónakornin frá USA Hjördís Eyþórsdóttir og Magnús Ólafsson  með 56,8 % Nánar á heimasíðu mótsins Sveitakeppnin hefst síðan í fyrramálið laugardaginn 30.jan.

föstudagur, 29. janúar 2016

Bridgehátíð 2016

Bridgehátíð var formlega sett í dag kl. 19:00 Illugi Gunnarsson setti mótið með sóma og er honum þakkað fyrir góða ræðu  Illugi gaf fyrstu sögnin fyrir hinn unga meistara Sigurbjörn Haraldsson og var sögnin  -pass Tvímenningurinn stendur yfir dagana 28-29.jan og sveitakeppni 30-31.jan.

mánudagur, 11. janúar 2016

Bridgehátíð 2016 -skráningu lokið mánudag. 25.jan.

Félagar innan BSÍ fá 20% afslátt af keppnisgjöldum ef greitt er fyrir 22.janúar Ekki verður tekið við greiðslum á hátíðinni sjálfri nema frá okkar erlendu gestum Hægt er að millifæra á reikning BSÍ 115-26-5431 kn: 480169-4769 og setja í skýringu fyrir hvern er verið að greiða Eða koma á skrifstofuna og greiða þar Keppnisgjöld fyrir tvímenning er því 20.000 ef greitt er fyrir 22.jan.

föstudagur, 8. janúar 2016

Samanlögð staða í Landsliðskeppni í opnum flokki.

Eftir tvær helgar af þremur í Landsliðskeppni í opnum flokki eru sveinn Rúnar Eiríksson og Þröstur Ingimarsson efstir með 208 impa og 19 impa forystu á annað sætið.

þriðjudagur, 5. janúar 2016

Landsliðskeppni 8-10.jan. n.k.

Seinni helgi landsliðskeppninnar í opnum flokki fer fram um næstu helgi og hefst spilamennska kl. 17:00 á föstudaginn Síðasta helgin í opna flokknum verður spiluð 18-20.marz Tímatafla  fyrir báða flokkana Einnig verður spilað í flokki kvenna og er fyrirkomulagið þar það sama 9 x 16 spila leikir þessa helgi Seinni helgi í kvenna flokki verður spilaður 4-6.mars n.