Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir - 2022 - 03

fimmtudagur, 31. mars 2022

Heimsmeistaramótið-heimasíða móts

The 45th World 2021 Bridge Team Championships | WBF Championships (worldbridge.

mánudagur, 28. mars 2022

Fundur um landsliðsmál

Boðað er til fundar um landsliðsmál A liðs KK og KVK í Síðumúlanum klukkan 14.00 sunnudaginn 3.apríl. Allir sem hafa áhuga á að taka þátt í landsliðsverkefnum eru hvattir til að mæta.

sunnudagur, 27. mars 2022

Íslandsmóti í tvímenning frestað

Ákveðið hefur verið að fresta Íslandsmóti í tvímenning til haust. Mikið er af mótum um þessar mundir og landsliðsverkefni erlendis. Nánari tímasettning kemur á næstu dögum.

miðvikudagur, 23. mars 2022

Ölfus og Bridgesambandið í samstarf

Ölfus og Bridgesambandið í samstarf Ölfus hefur boðið Bridgesambandinu að úrslitin í sveitakeppninni verði haldin í  Versölum 21.-24. apríl. Það er eitt af markmiðum Bridgesambandsins að kynna bridge um land allt og er það mjög spennandi að fara í samstarf við Ölfus og efla umgjörðina um þetta mót.

miðvikudagur, 23. mars 2022

Gisting á Kjördæmamóti á Akureyri – tilboð 20.-22. maí 2022

Gisting á Kjördæmamóti á Akureyri – tilboð 20.-22. maí 2022 Eftirfarandi verðtilboð hafa borist en engin herbergi hafa verið tekin frá.   Hótel Kjarnalundur, Kjarnalundi, 600 Akureyri info@kjarnalundur.

sunnudagur, 20. mars 2022

Sveit Grant Thornton efst í undanúrslitum

Undanúrslit í sveitarkeppni í Bridge voru spiluð um helgina á hótel Natura. Var mótið æsispennandi og gekk öll framkvæmd mjög vel. 12 efstu sveitirnar komast í úrslit og voru sveitir að detta inn og út úr úrslitum alveg fram á síðasta spil.

fimmtudagur, 17. mars 2022

LÍFLEGT - pistill frá Ísak

Íslenskir áhugamenn um bridge hafa verið áhugasamir og duglegir að spila, nú þegar veiran hefur aðeins verið að losa tökin. Spilarar hafa verið „að sjá ljós við enda ganganna“ og fagna því að geta loks aftur spilað bridge í spilasölum.

þriðjudagur, 15. mars 2022

Undanúrslit í sveitakeppni á Reykjavík Natura - tímaáætlun

Spilað er á Reykjavík Natura og byrjað 18.00 næstkomandi föstudag.  Spilaðir eru 12 spila leikir, 12 umferðir monrad. Hver leikur er 1½ tími + 10 – 15 mín hlé.

mánudagur, 14. mars 2022

Bridgeskólinn frestast um viku - byrjar næsta mánudag

STIG 1 (byrjendur): Hefst 21. mars – 5 mánudagskvöld frá 19-22. STIG 2 (kerfið): Hefst 23. mars – 5 miðvikudagskvöld frá 19-22. Staður: Síðumúli 37, 3ja hæð.

fimmtudagur, 10. mars 2022

Bridgeskólinn að fara af stað

Bridgeskólinn Í þeirri von og trú að C19 sé loksins á förum tekur Bridgeskólinn aftur til starfa. STIG 1 (byrjendur): Hefst 14. mars – 5 mánudagskvöld frá 19-22. STIG 2 (kerfið): Hefst 16. mars – 5 miðvikudagskvöld frá 19-22. Staður: Síðumúli 37, 3ja hæð.

þriðjudagur, 8. mars 2022

Kjördæmamót 2022, 21.-22. maí

Kjördæmamótið 2022 hefur verið seinkað um viku vegna þess að kosningar eru sömu helgi. Mótið verður haldið í Íþróttahúsi Naustaskóla 21.-22. maí.

sunnudagur, 6. mars 2022

Sveit Grant Thornton deildarmeistarar

�a� n��ist loksins a� kl�ra Deildakeppnina 2021, n� � mars 2022. Sveit Grant Thornton var� Deildameistari � fyrstu deild, eftir h�rku rimmu vi� sveit InfoCapital.

laugardagur, 5. mars 2022

Deildakeppni 1. deild Úrslitaleikur

Nú spila til úrslita sveit Gauksa og Grant Thornton í deildarkeppni 1.deildar. Gauksi leiðir 50-35. Haldið verður áfram að spila 10 í fyrramálið.

föstudagur, 4. mars 2022

BSÍ og bid72.com

BSÍ og bid72.com ákváðu að fara í samstarf saman og bjóða öllum Íslenskum og Færeyskum spilurum upp á 5 spil í viku á bridge-appinu bid72 Hér er linkur á síðuna þar sem allt er útskýrt og til að skrá sig þá þurfa menn lykilorð sem er bsi72 Hér er linkur á upplýsingasíðuna: https://bid72.com/bsi/ Eina sem menn þurfa að gera er að ná í appið, búa til aðgang og skrá sig og makker á skráningarsíðunni.

föstudagur, 4. mars 2022

EBL WOMEN'S NEWSLETTER

EBL WOMEN'S NEWSLETTER MARCH 2022[1].pdf (eurobridge.