Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir - 2022 - 05

þriðjudagur, 31. maí 2022

16th World Bridge Series

Uppl�sngar h�r � �essum link (252) Invitation to World Bridge Series - Wroclaw 2022 - YouTube

mánudagur, 30. maí 2022

Norrænt bridge samstarf

Norrænt bridge samstarf hefur reynst Íslandi mjög vel. Í tengslum við NM í bridge voru haldnir fundir um ýmis mál. Einn fundurinn var fundur allra norrænu sambandanna.

sunnudagur, 29. maí 2022

Kvennaliðið tapaði í loka umferðinni.

Kvennaliðið tapaði stórt fyrir Noregi í síðustu umferð, var liðið í góðri stöðu fyrir loka daginn en endaði á slæmum leikjum gegn Danmörku og Noregi sem voru í tveimur neðstu sætunum.

sunnudagur, 29. maí 2022

Erfiðu móti lokið í opna flokknum

Opni flokkurinn tapaði gegn Finnlandi í síðustu umferðinni 3,12-16,88 og endar í neðsta sæti. Liðið náði sér aldrei á strik á þessu móti og niðurstaðan vonbrigði.

sunnudagur, 29. maí 2022

Slæm töp í 9.umferð

Opni flokkurinn tapaði illa fyrir Svíum í 9.umferð 0,93-19,07 og eru í neðsta sæti fyrir síðustu umferð. Spilr opni flokkurinn við Finna í síðustu umferðinni og verða að vinna þá sannfærandi til að komast upp úr neðsta sætinu.

sunnudagur, 29. maí 2022

Ísland-Danmörk í kvenna

Fyrstu andstæðingar dagsins hjá kvennaliðinu er lið Dana. Liðið hefur átt nokkra góða leiki m.a. á móti Íslandi í fyrri umferðinni. Það er margt áhugavert við danska liðið, þær komu eins og mörg önnur lið með 2 pör til leiks.

laugardagur, 28. maí 2022

Slæm umferð

Ísland tapaði illa fyrir Danmörku í opna flokknum og hafa að litlu að keppa nema heiðri sínum í síðustu tveimur umferðunum á morgun. Í kvenna flokknum tapaði Ísland fyrir unofficial liði Finnlands í leik sem mátti ekki tapast.

laugardagur, 28. maí 2022

Jafntefli gegn Finnlandi

Kvennali�i� var r�tt � �essu a� gera jafntefli vi� Finna. Er �sland me� 78,85 stig � ��ru s�ti t�pum 3 stigum � eftir heimsmeisturum Sv�a sem lei�a m�ti�.

laugardagur, 28. maí 2022

Slæmt tap í opna flokknum (1)

Opni flokkurinn tapaði í 6.umferð illa gegn Norðmönnum. 2,41-17,59. Næsti leikur er gegn Danmörku.

laugardagur, 28. maí 2022

Sigur gegn heimsmeisturum Svía

Íslenska kvennalandsliðið var rétt í þessu að vinna heimsmeistara Svía 12,55-7,45. Er liðið í 2.

laugardagur, 28. maí 2022

Stórsigur í opna flokknum

Ísland var rétt í þessu að vinna stórsigur á Færeyjum 17,17-2,83 í opna flokknum.

laugardagur, 28. maí 2022

Tap gegn Noregi

�slenska kvennali�i� f�kk 8,24 stig gegn norska li�inu og eru a�eins tveimur stigum fr� ��ru s�ti. � opna flokknum fengust 5,82 stig. � seinni umfer�ina ver�ur ra�a� eftir st��u.

föstudagur, 27. maí 2022

Kvennaliðið með sigur á Danmörku

Kvennaliðið vann Danmörku í 4.umferð NM 10,31-9,69. Er liðið í öðru sæti aðeins rúmlega 3 stigum á eftir Svíum sem eru í 1.sæti. Ekki gekk eins vel í opna flokknum þar sem liðið tapaði stórt fyrir Danmörku.

föstudagur, 27. maí 2022

Slæmt tap í opna flokknum

Ísland tapaði illa fyrir Færeyjum í 3.umferð 4,44 - 15,56. Íslenska liðið spilar við danska liðið í 4.umferð sem er að vinna Svía stórt.

föstudagur, 27. maí 2022

Íslenska kvennaliðið með stórsigur

Ísland var rétt í þessu að vinna ótrúlegan stórsigur á Finnlandi unofficial 90-8 í impum eða 20-0.

föstudagur, 27. maí 2022

Leikir dagsins

�sland spilar vi� vini okkar fr� F�reyjum � opna flokknum � 3.umfer�. F�reyjar ger�u s�r l�ti� fyrir og unnu st�rsigur � Danm�rku � s��ustu umfer�. Danir voru taldir sigurstranglegir fyrir m�ti� en hafa fari� frekar illa af sta� og fengi� 4,26 � b��um leikjum s�num til �essa.

fimmtudagur, 26. maí 2022

Frábær sigur gegn Finnlandi

Ísland vann Finnland 15,19-4,18 í opna flokknum og kvennaliðið vann Finnland 10,91-9,09.Auk þess er keppnisstjóri að fara yfir eitt spil þar sem gefnar voru rangar útskýringar sem gæti aukið muninn í kvennaflokk.

fimmtudagur, 26. maí 2022

Tap gegn Svíum

Kvennalandsliðið tapaði fyrsta leik sínum á móti heimsmeisturum Svía 7,45-12,55 eftir að hafa verið yfir nánast allan leikinn. Opni flokkurinn tapaði fyrir Svíium 4,81-15,19.  Næsti leikur er gegn Finnlandi sem vann Færeyjinga í opna flokknum stórt í 1.umferð og í kvennaflokknum vann Finnland nauman sigur gegn Finnlandi b.

fimmtudagur, 26. maí 2022

Norðurlandamótið að hefjast í dag

Norðurlandamótið í bridge hefst á eftir. Spilar bæði opna landsliðið og kvenna landsliðið fyrst við Svía og svo Finna. Hægt verður að fylgjast með á heimasíðu mótsins.

þriðjudagur, 24. maí 2022

Norðurlandamótið hefst á fimmtudag

Ísland hefur leik á norðurlandamótinu á fimmtudag gegn Svíum klukkan 16.00.