Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir - 2022 - 07

fimmtudagur, 28. júlí 2022

Bein útsending á BBO klukkan 18

Leikur Hótel Norðurljósa og Grant Thornton í 16.liða úrslitum í bikar verður sýndur beint á BBO klukkan 18.00 í dag. Lýsendur verða Stefán Jónsson og Ísak Örn Jónsson.

fimmtudagur, 28. júlí 2022

Fréttir af bikarnum

Í gær fóru fram tveir leikir í 16.liða úrslitum í bikarnum. Bridgefélag Breiðholts vann Athenu 120-76 og Skákfjelagið vann Doktorinn 74-65. Bridgefélag Breiðholts og Skákfjélagið eru því komin áfram í 8.liða úrslit ásamt InfoCapital og SFG.

þriðjudagur, 26. júlí 2022

Stórleikur á BBO á fimmtudag

Leikur Hótel Norðurljósa sem eru ríkjandi Íslandsmeistarar og Grant Thornton sem er ein sigursælasta sveitin í Bridge undanfarin ár munu mætast 18.00 á fimmtudag.

laugardagur, 23. júlí 2022

2 leikir búnir í 16.liða úrslitum

SFG vann Quatro Logos 115-50 í leik sem fór fram á föstudagskvöld. SFG átti 12 impa í hálfleik en gáfu verulega í seinni hálfleik.  Áður hafði InfoCapital unnið París 158-47 í fyrsta leik 16.liða úrslita.

fimmtudagur, 14. júlí 2022

Dregið í 2.umferð í bikarnum

Dregið var í 2.umferð á Álfacafe á Borgarfiði Eystri þar sem aðstandendur minningar/afmælismóts Skúla Sveinssonar hjálpuðu til við að draga. En það verður einmitt spilað á Álfacafe 27.ágúst.

fimmtudagur, 14. júlí 2022

Borgarfjörður Eystri

Borgarfjörður Eystri og Hallveig Karlsdóttir voru heimsótt í dag og í gær. Hallveig ætlar að hjálpa að draga í bikarnum og sýna aðstæður en hún er að halda minningar/afmælismót Skúla Sveinssonar þann 27.ágúst.

fimmtudagur, 7. júlí 2022

1.umferð í bikarnum að klárast

Í gær unnu Breytt og brallað sigur á Bridgesveit Kópavogs 153-55 og eru því aðeins 3 leikir eftir.  Þær sveitir sem eru komnar áfram eru. Frímann Stefánsson J.