Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir - 2022 - 08

mánudagur, 29. ágúst 2022

Sigurvegari í verðlaunaleik Sumarbridge

Eins og kynnt var er glæsilegur vinningur í boði fyrir þann sem mætir best í Sumarbridge. Í boði er gisting á Siglufirði um næstu helgi í tveggja manna herbergi.

mánudagur, 29. ágúst 2022

Bilun

�a� er bilun � t�lvukerfinu sem gerir �a� a� verkum a� �ll m�t eru s�g� byrja klukkan 13.00 � netinu alveg sama hven�r �au eiga a� byrja. Unni� er a� vi�ger�.

mánudagur, 29. ágúst 2022

Glæsilegt mót á Borgarfirði Eystri

Um helgina fór fram minningarmót um Skúla Sveinsson á Borgarfirði Eystri. Óhætt er að segja að virkilega vel hafi verið staðið að mótinu og mjög mikil ánægja var hjá spilurum.

þriðjudagur, 23. ágúst 2022

Þjálfarateymið í opna flokknum

Gengið hefur verið frá því hverjir munu sjá um þjálfun bæði landsliðsins og eins æfingahópsins í opna flokknum. Þannig hefur hvert par hefur fengið sér þjálfara sem mun sjá um þjálfun.

föstudagur, 19. ágúst 2022

Æfingahópur kvennalandsliðs

Auglýst er eftir áhugasömum pörum í æfingahóp kvennalandsliðs. En Anna Ívars yfirmaður landsliðsmála kvenna mun tilkynna hópinn 1.september. Liðið sem mun fara á NM í Svíþjóð á næsta ári mun síðan verða valið í janúar.

föstudagur, 19. ágúst 2022

Jón Baldurs velur æfingahóp

Jón Baldur hefur valið æfingahóp fyrir opna flokkinn.

miðvikudagur, 17. ágúst 2022

J.E. Skjanni komnir í undanúrslit í bikarnum.

J.E.Skjanni fóru á kostum í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum í bikarnum eftir stórsigur á Skákfjélaginu.  Eru Formaðurinn og J.E.Skjanni komin í pottinn en næsti leikur verður miðvikudag eftir viku þegar SFG og Breytt og brallað mætast í Síðumúlanum.

miðvikudagur, 17. ágúst 2022

Landslið Íslands í bridge - opni flokkur

Jón Baldursson hefur valið sinn fyrsta landsliðshóp. En tilkynnt var um valið í sumarbridge í kvöld, en ekki hefur verið betri mæting í sumarbridge í 3 ár.

þriðjudagur, 16. ágúst 2022

Æfingahópur í opna flokk

Frestur til að sækja um í æfingahóp í opna flokknum rennur út á hádegi á morgun miðvikudag. Þeir sem eru áhugasamir eiga endilega að senda póst á Matthias@bridge.

mánudagur, 15. ágúst 2022

Anna Guðrún Ívarsdóttir ráðin yfirmaður landsliðsmála kvenna

Anna G. Ívarsdóttir hefur verið ráðin til að stýra kvennalandsliði Íslands í Bridge. Anna hefur spilað hundruði landsleikja fyrir Ísland en hennar fyrsta Evrópumót var 1993. Anna er margfaldur íslandsmeistari í sveitakeppni og tvímenningi kvenna og hefur einnig unnið Íslandsmót í paratvímenning og parasveitakeppni.

föstudagur, 12. ágúst 2022

Minningargjöf um Sigurð Sverrisson

Einar Gudjohnsen hefur ákveðið að styrkja opna landsliðsflokkinn í bridge veglega næstu 4 árin til minningar um Sigurð Sverrisson einn besta bridgespilara sem Ísland hefur átt.

fimmtudagur, 11. ágúst 2022

Æfingahópur í opna flokki

Jón Baldursson mun velja landslið og æfingahóp í næstu viku í opna flokk. Þau pör sem hafa áhuga á að vera í æfingahóp mega endilega senda póst á Matthias@bridge.

fimmtudagur, 11. ágúst 2022

Jón Baldursson ráðinn yfirmaður landsliðsmála í opna flokknum

Jón Baldursson hefur verið ráðinn til að stýra landsliði Íslands í opna flokknum í bridge. Sett hefur verið upp 4 ára áætlun þar sem markmiðið er að Ísland verði meðal fremstu þjóða í bridge á sama tíma og byggt verður til framtíðar.

þriðjudagur, 9. ágúst 2022

8.liða úrslit í bikarnum af stað

Formaðurinn úr Hafnarfirði var fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum með sigri á Bridgefélagi Breiðholts í kvöld 113-56. Sveit formannsins skipa þeir Sigurjón Harðarson, Ólafur Sigmarsson, Skúli Jónas Skúlason, Bergur Reynisson, Matthías Imsland og Ólafur Steinason.

föstudagur, 5. ágúst 2022

Dregið í bikarnum - risa leikur

Það var dregið í 8.liða úrslit í bikarnum þegar spilað var í sumarbridge nú í kvöld.  Það verður risa leikur þar sem Grant Thornton og InfoCapital spila.

fimmtudagur, 4. ágúst 2022

Fréttir af bikarnum

Síðasti leikurinn í bikarnum kláraðist í kvöld þegar Formaðurinn úr Hafnarfirði var síðasta lið inn í 8.úrslitin.  Liðin sem verða í pottinum eru:  Skákfjélagið SFG Breytt og Brallað Bridgefélag Breiðholts InfoCapital Grant Thornton J.

miðvikudagur, 3. ágúst 2022

16.liða úrslit í bikar að klárast

Leikur J.E.Skjanna  og Frímanns Stefánssonar var æsispennandi.  Eftir 30 spil áttu norðanmenn 18 impa - fjórða lotan var fjörug og mikið skorað. Eftir 40 spil var staðan hnífjöfn og þurfti að framlengja um 4 spil.