Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Bridgeskólinn hefst á morgun 26.sept - frítt fyrir börn og ungmenni

sunnudagur, 25. september 2022
STIG 1 (byrjendur): Hefst 26. sept. Fimm mánudagskvöld frá 19-22 í Síðumúla 37.

Byrjað alveg frá grunni og farið vel yfir undirstöður Standard-sagnkerfisins. Það er fólk á öllum aldri sem sækir skólann og ekkert mál að mæta stakur/stök. VERÐ: 20 þúsund fyrir manninn.

STIG 2 (kerfið): Hefst 28. sept. Fimm miðvikudagskvöld frá 19-22 í Síðumúla 37.

Farið vel yfir uppbyggingu Standard-kerfisins og áframhald sagna eftir opnun og fyrsta svar. Námskeiðið hentar breiðum hópi spilara og ekkert mál að mæta stakur/stök. VERÐ: 20 þúsund fyrir manninn.

Upplýsingar og innritun í síma 898-5427 og í tölvupósti gpa@simnet.is

Bkv. Guðmundur Páll Arnarson