Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Úrslitin á Northern Lights Bridge Festival í sveitakeppni

sunnudagur, 4. september 2022

Það voru heldur betur sviptingar í sveitakeppninni á Northern Lights Bridge Festival sem haldið var til minningar um Gunnar Birgisson núna um helgina. 

Í fyrsta sæti varð sveit Sessor með 128.50 stig, en í sveitinni spiluðu Hrannar Erlingsson-Gunnar B. Helgason-Egill D. Brynjólfsson-Ari Konráðsson. Var sveitin í sjöunda sæti eftir fyrri daginn en átti frábæran dag og unnu að lokum góðan sigur. 

Í öðru sæti varð sveit Íslensk Landbúnaðar með 119,62 stig en í sveitinni spiluðu Höskuldur Gunnarsson-Gunnar Þ. Gunnarsson-Björn Snorrason-Pálmi Kristmannsson. Var sveitin í toppbaráttu allan tímann.

Í þriðja sæti varð svo sveit Myllunar með 118,49 stig en í þeirri sveit spiluðu Helgi Sigurðsson-Gísli Steingrímsson-Haukur Ingason-Skafti Jónsson

Var mótið mjög glæsilegt í alla staði. Var öll umgjörð til fyrirmyndar og frábær verðlaun. En sigursveitin fékk 750.þúsund í verðlaun, sveit Íslensk Landbúnaðar 500.þúsund og Myllan 190.þúsund. 

Er óhætt að segja að úrslitin hafi verið óvænt en þær sveitir sem höfu verið taldar sigurstranglegastar fyrir mótið röðuðu sér í sæti fjögur til átta. En það voru sveitir Lögfræðistofu Íslands ehf, J.E.Skjanna ehf, Hótel Norðurljósa, Jóns Baldurssonar og Grant Thornton.