Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir - 2022 - 11

fimmtudagur, 24. nóvember 2022

Skráning í parasveitakeppnina

Skráning hér

mánudagur, 21. nóvember 2022

Sveit infoCapital deildarmeistari

Það var alvöru úrslitaleikur milli InfoCapital og Grant Thornton í 1.deild í gær. Grant Thornton byrjaði með 16 impa í carryover vegna sigur gegn InfoCapital í riðlakeppninni.

sunnudagur, 20. nóvember 2022

Síðasta lota að hefjast í úrslitum

Það er gríðarlega spenna í úrslitaleik 1.deildar milli Grant Thornton og Info Capital. InfoCapital vann þriðju lotu 38-35 og er því staðan 104-99 fyrir InfoCapital fyrir síðustu lotu.

sunnudagur, 20. nóvember 2022

Allt í járnum í úrslitaleik 1.deildar

Grant Thornton vann aðra lotu í úrlitaleiknum 28-26. InfoCapital er því yfir 56-66 í hálfleik. Tvær lotur eru eftir að spilamennsku og er spilað í Síðumúla 37. Önnur deildin er spiluð á sama tíma og er staðan þar sú að Doktorinn leiðir mótið með 74,48 stig.

sunnudagur, 20. nóvember 2022

Running score

Running score 1.deild http://gogn.bridge.is/bk/2022-11-20.htm Running score 2.

laugardagur, 19. nóvember 2022

InfoCapital komnir yfir

Sveit InfoCapital �tti mj�g g��a fyrstu lotu gegn Grant Thornton � �rslitaleik 1.deildar. Vann InfoCapital lotuna 40-12 en Grant Thornton �tti 16 impa fr� fyrir Helgi 1.deildar.

laugardagur, 19. nóvember 2022

Undanúrslit staða

Nú er verið að spila undanúrslit í 1.deild.  Staðan eftir 2 lotur af 3 er eftirfarandi InfoCapital 77 - Betri Frakkar 38 Grant Thornton 91 - Tick Cad 66 Þarna er ekki tekið tillit til Carryover en þar eiga Betri Frakkar 1 impa og Tick Cad 2 tilgóða.

laugardagur, 19. nóvember 2022

Deildin spiluð í dag

Það verður mikið fjör í Síðumúla í dag. Núna klukkan 10.00 hefst bæði spilamennska í undanúrslitum í 1.deild sem og 2.deild hefst. Í 1.deild spila í undanúrslitum Grant Thornton-Tick Cad Betri Frakkar- info Capital Sveit Grant Thornton hefur verið nánast óstöðvandi síðasta árið og er til alls líkleg.

þriðjudagur, 15. nóvember 2022

1.deild undanúrslit

Nú liggur fyrir hvernig undanúrslitin verða í 1.deild næsta laugardag.  Grant Thornton - Tick Cad (Tick Cad byrjar tveimur impum yfir). Betri Frakkar - InfoCapital (Betri Frakkar byrja hálfum impa yfir).

mánudagur, 14. nóvember 2022

Deildarkeppnin spiluð um næstu helgi.

Sveit Grant Thornton hefur tíma til kvölds að velja sér andstæðing í undanúrslitum í 1.deild sem verða spiluð um næstu helgi. Á sama tíma er spiluð 2.deildin en efstu 4 sveitirnar vinna sér inn rétt í 1.deild á næsta ári.

laugardagur, 12. nóvember 2022

2.deildin spiluð 19-20.nóv

Skráning

miðvikudagur, 9. nóvember 2022

Spilakvöld bridgeskólans hefjast 21.nóv

Spilakvöld bridgeskólans hejast 21.nóv. Tilvalið fyrir þá sem vilja spila með stuðningi frá kennurum eða læra meira. Skráning á Bridge@bridge.

miðvikudagur, 2. nóvember 2022

Hvar er spilað

Sunnudagar 18:00 Bridgefélag Breiðfirðinga Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, Reykjavík   19:00 Norðurljósaklúbburinn Spilað á netinu í gegnum Realbridge     Mánudagar 12:30 Félaga eldri borgara í Garðabæ Jónshús   13:00 Bridgefélag eldri borgara Reykjavík Síðumúli 37   19:00 Súgfirðingar  Síðumúli 37   19:00 Oddfellow  Síðumúli 37   19:00 Bridgefélag Hafnarfjarðar Hraunsel, Flatahrauni 3 Hafnarfirði   19:00 Bridgefélag Borgarfjarðar Logalandi   19:00 Bridgefélag Hrunamanna Heimalandi   19:00 Bridgefélagið Muninn Reykjanesbæ Fjörubraut gengt Sólningu   19:30 Bridgefélag Siglufjarðar Tjarnaborg      Þriðjudagar 13:00 Bridgefélag eldri borgara Hafnarfirði  Hraunsel, Flatahrauni 3 Hafnarfirði   19:00 Bridgefélag Reyðarfjarðar Samkomusalur Melgerði 13   19:00 Bridgefélag Reykjavíkur Síðumúla 37   19:00 Bridgefélag Rangæinga Félagsheimilinu Heimalandi undir V-Eyjafjöllum.

miðvikudagur, 2. nóvember 2022

Nýr klúbbur í Þorlákshöfn

Það er skemmtilegt að segja frá því að Bridgefélag Þorlákshafnar er að hefja starfssemi. Spilað verður á þriðjudögum klukkan 19.30 í Kiwanishúsinu í samstarfi við Kiwanis og byrjað strax eftir áramót.

þriðjudagur, 1. nóvember 2022

Bridgefélag Siglufjarðar

Bridgefélag Siglufjarðar hélt aðalfund í gær. Spilað verður í Tjarnarborg (Ólafsfirði) á mánudögum í vetur. Spilað verður næsta mánudag og eru allir velkomnir.