Fréttir - 2023 - 09
Tímaplan Íslandsmót eldri spilara í sveitakeppni
Tímaplan
Jón Baldursson - minningarorð
Ég kynntist Jóni Baldurssyni fyrst þegar ég var að byrja að spila á Laugarvatni fyrir 32 árum. Ég tók strax eftir að þarna var á ferðinni leiðtogi. Það báru allir svo mikla virðingu fyrir Jóni, ekki bara sem spilara heldur líka sem persónu sem var til í að gefa af sér og kenna öðrum.
Útför Jón Baldurssonar fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 26. september klukkan 13:00
Bikarinn úrslit - Running score
Running score
Það verða InfoCapital og Hótel Norðurljós sem spila til úrslita
InfoCapital og Hótel Norðurljós sigruðu leiki sína í undanúrslitum á sannfærandi hátt í dag. Spila liðin því til úrslita á morgun sunnudag. Verður byrjað klukkan 10:00 og verður leikurinn sýndur á BBO.
Hótel Norðurljós og InfoCapital með forystu eftir 2 lotur
Hótel Norðurljós og InfoCapital voru bæði með risa skor í 2 lotu af 4 í undanúrslitum í bikarnum. Er ljóst að það verður brekka fyrir Járntjaldið og InfoCapital að koma tilbaka í seinni hálfleik.
Undanúrslit í bikar - live score
Hér
WBT Master Reykjavík
Það hefur verið gengið frá því að WBT Master Reykjavik verður haldið í Hörpu mánudag til fimmtudag fyrir Bridgehátíð. Það eru góð peningaverðlaun en á móti hafa þátttökugjöld verið veruleg.
Bridgefélag Oddfellowa og Súgfirðinga BOS
Bridgefélag Oddfellowa og Súgfirðinga BOS Bridgefélag Oddfellowa og Súgfirðinga spilar á mánudagskvöldum kl. 18:30 í húsnæði BSÍ, Síðumúla 37. Allir spilarar eru velkomnir, opið fyrir alla.
Jón Baldursson látinn
Það er með mikilli sorg í hjarta sem ég flyt þær fréttir að Jón Baldursson lést aðfararnótt laugardags. Jón Baldursson var án nokkurs vafa besti bridgespilari Íslands fyrr og síðar.
Dregið í undanúrslitum
Það var dregið í undanúrslitum í bikarnum í kvöld. Það voru þeir Dóri og Maggi stigameistarar sumarbridge sem sáum um að draga. Sá Maggi um að draga heimalið og Dóri útilið.