Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
fimmtudagur, 26. október 2006

Miðvikudagsklúbburinn: Páll og Ómar skelltu sér á toppinn í lokin og unnu sér inn gjafabréf á Lauga-Ás

Það var fín mæting hjá Miðvikudagsklúbbnum 25. október. 20 pör spiluðu Monrad Barometer, og var notast við BridgeMate við útreikning. Páll Þórsson og Ómar Olgeirsson sigruðu með 61,1% skor og fengu gjafabréf á Lauga-Ás fyrir 4. 2. sætið kom í hlut Geirlaugar Magnúsdóttur og Torfa Axelssonar sem hrepptu 2 konfektkassa og sælgæti.

miðvikudagur, 25. október 2006

BR - Eykt á góðu skriði

Eftir 2 kvöld af 3 í Swiss monrad sveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur er Eykt með góða forystu en sveitin skoraði 29 stig af 32 mögulegum á öðru spilakvöldinu.

föstudagur, 20. október 2006

Bridgefélag Selfoss: Lokastaðan í Málarabutlernum

Þriðja og síðasta kvödið í Málarabutlernum var spilað fimmtudagskvöldið 19. október.  Lokastaðan varð þessi: Röð Par Stig 1. Björn Snorrason - Guðjón Einarsson 152 2. Ólafur Steinason - Runólfur Þór Jónsson 104 3. Kristján Már Gunnarsson - Helgi Grétar Helgason 78 4. Gísli Þórarinsson/Sigurður Vilhjálmsson - Grímur Magnússon 57 5. Þröstur Árnason - Ríkharður Sverrisson 50 6. Garðar Garðarsson - Gunnar Þórðarson 42 7. Guðmundur Þór Gunnarsson - Þórður Sigurðsson/Daníel Sigurðsson 21 8. Brynjólfur Gestsson/Guðmundur Theodórsson - Helgi Hermannsson 7 9. Gunnar Björn Helgason - Stefán Short/Sigfinnur Snorrason -2 10. Gísli Hauksson - Magnús Guðmundsson -16 11. Birgir Pálsson - Sigurður Magnússon/Loftur Guðmundsson -42 12. Símon G.

fimmtudagur, 19. október 2006

Miðvikudagsklúbburinn: Hrafnhildur og Jörundur komust á toppinn á réttum tíma!

R

föstudagur, 29. september 2006

Spilamennskan hjá Bridgefélagi Selfoss fer líflega af stað

Fyrsta almenna mót vetrarins var eins kvölds tvímenningur sem spilaður var 28. september 2006. Til leiks mættu 13 pör. Úrslit urðu: Röð Par Stig 1. Björn Snorrason - Guðjón Einarsson 49 2. Kristján Már Gunnarsson - Helgi Grétar Helgason 37 3. Gunnar B.

föstudagur, 29. september 2006

Bridge í Áskirkju

Alla þriðjudaga yfir vetrartímann milli klukkan 14 og 16. Áskirkja er á Vesturbrún 30. Nánari upplýsingar í síma 581 4035. Allir velkomnir.

fimmtudagur, 28. september 2006

Miðvikudagsklúbburinn: Halldór og Magnús unnu gjafabréf á veitingstaðinn Lauga-Ás

Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson unnu eins kvölds Barómeter hjá Miðvikudagsklúbbnum. Þeir skoruðu 58,8%. 2,5% hærra skor en Lilja Kristjánsdóttir og Ólöf Ólafsdóttir sem enduðu í 2. sæti.

þriðjudagur, 26. september 2006

Eitt allra jafnasta mót allra tíma!

Fyrsta mót Bridgefélags Akureyrar í vetur er hafið en það er Startmót Sjóvá með þáttöku 14 para. Elstu menn voru spurðir álits og töldu þeir að svo jöfnu móti myndu þeir vart eftir.

þriðjudagur, 26. september 2006

Aðalfundartvímenningur Bridgefélags Selfoss

Aðalfundur Bridgefélags Selfoss var haldinn 22. september, og var stjórnin þar endurkjörin í heilu lagi. Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum, var spilaður 11 para tvímenningur.

fimmtudagur, 21. september 2006

Fyrsta spilakvöld Miðvikudagsklúbbsins

Gísli Steingrímsson, Sveinn Þorvaldsson, Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson voru jafnir og efstir fyrsta spilakvöld Miðvikudagsklúbbsins. Spilaður var Monrad Barómeter og notast var við BridgeMate.

miðvikudagur, 20. september 2006

Aðalfundur B.A. 2006 og úrslit

Aðalfundur B.A. 2006 var haldinn 19.september og m.a. var ný stjórn kjörin: Stjórn BA 2006-2007 Stefán Vilhjálmsson, formaður Hermann Huijbens, varaformaður Brynja Friðfinnsdóttir, gjaldkeri Frímann Stefánsson, ritari Víðir Jónsson, áhaldavörður Stefán Sveinbjörnsson, varamaður Sigfús Aðalsteinsson, varamaður Er nýkjörinni stjórn óskað velfarnaðar í starfi.

miðvikudagur, 20. september 2006

B.A. býður til Startmóts Sjóvá!

Bridgefélag Akureyrar hefur ákveðið að bjóða til ókeypis bridgeveislu í upphafi keppnistímabilsins. Þriðjudaginn 26.september hefst tveggja kvölda tvímenningsmót, Startmót Sjóvá, og til að byrja tímabilið að krafti verður ekkert keppnisgjald innheimt.

þriðjudagur, 1. ágúst 2006

Sumarbridge 2006: Helgarnir unnu 22 para tvímenning!!

Helgi Sigurðsson og Helgi Jónsson komu, sáu og sigruðu 22 para Monrad Barómeter tvímenning í Sumarbridge 31. júlí. Þeir enduðu 2 stigum fyrir ofan Guðlaug Sveinsson og Halldór Þorvaldsson.

þriðjudagur, 27. júní 2006

SumarBRIDGE 2006: Svala og Stefán unnu 20 para tvímenning!!

Svala Pálsdóttir og Stefán Garðarsson unnu 20 para tvímenning í Sumarbridge 2006.

mánudagur, 19. júní 2006

Stórmót Bridgefélags Menntaskólans að Laugarvatni

Bridgemót NEMEL 28 manns mættu til leiks á Nordica á 16.júnímót Bridgefélags Menntaskólans að Laugarvatni. Skemmtu spilarar sér konunglega og menn voru sammála um það að hafa þetta árlegan viðburð, 16.júní.

þriðjudagur, 13. júní 2006

AÐALFUNDUR BRIDGEFÉLAGS REYKJAVÍKUR

Aðalfundur Bridgefélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 14. júní nk. klukkan 17:30 í húsnæði BSÍ að Síðumúla 37. 3. hæð. Á dagskrá eru lagabreytingar og venjuleg aðalfundarstörf.

þriðjudagur, 13. júní 2006

Sumarbridge: Gulli Sveins og Maggi unnu Gabríel og Villa JR með einu stigi!!

Guðlaugur Sveinsson og Magnús Sverrisson unnu Gabríel Gíslason og Vilhjálm Sigurðsson JR með einu stigi. Þetta var flott skor hjá báðum pörum, 62,5% og 62,3%.

laugardagur, 10. júní 2006

Sumarbridge: Gabríel Gíslason og Gísli Steingrímsson með 60.4% skor!

Gabríel Gíslason og Gísli Steingrímsson unnu 14 para tvímenning í Sumarbridge með rétt rúmlega 60% skor. Það er ekki á hverjum degi sem 13 ára spilarar vinna tvímenningsmót og auk þess rétt missti hann af 1. sæti í Miðnætursveitakeppninni.

fimmtudagur, 8. júní 2006

Sumarbridge: Jóhann Stefánsson og Birkir Jónsson unnu 28 para tvímenning!

Glæsileg þátttaka var í Sumarbridge miðvikudaginn 7. júní. 28 pör mættu til leiks og hlutskarpastir voru Jóhann Stefánsson og Birkir Jónsson með +90 sem jafngildir 62.4% skori.

fimmtudagur, 1. júní 2006

Sumarbridge: Snorri og Ingólfur leiddu allt kvöldið og unnu!!

Snorri Sturluson og Ingólfur Hlynsson leiddu allt kvöldið í Sumarbridge og stóðu uppi sem sigurvegarar með +37 sem jafngildir 59.4% skori. Næstar voru Inga Lára Guðmundsdóttir og Unnur Sveinsdóttir.