Fréttir 2017
Bronsstig og vordagskrá BK komin á heimasíðuna
Bronsstig fyrir sept-des tímabilið eru komin á heimasíðuna og dagskráin frá jan-maí 2018 einnig.
Jón Ingþórsson og Hlynur Garðarsson unnu Jólamót BR
Jólamót Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í dag. Hlynur Garðarsson og Jón Ingþórsson sigruðu með 58,5% skor eftir að hafa leitt mótið lengst af.
Rangæingar -- Úrslit jólamóts
Árlegt jólamót okkar Rangæinga var haldið í Hvolnum á Hvolsvelli í dag. Til leiks mættu 16 pör og spiluðu 44 spil. Eins og menn vita hafa sauðfjárbændur glímt við alvarlegan rekstrarvanda og lagaðist lítið á þessu ári.
Jólamót BH 28. desember 2017 - RAUNSTAÐA
Raunstaða og öll spil
Jólamót BH og Regins 2017
Þá er komið að því !!!! Stærsta mót landsins Jólamót BH og Regins verður haldið fimmtudaginn 28.
Jólamót BR 30. desember
Jólamót BR verður haldið laugardaginn 30. desember 2017 í Síðumúla 39. Mótið hefst kl. 11:00 stundvíslega. Spilaður verður Monrad Barometer - 44 spil.
Rangæingar -- Næsta spil
Við Rangæingar settumst við spil sl. þriðjudag að vanda. Á dagskrá fundarinars var að leika barometer, jólaölkvöld, með tilheyrandi verðlaunum í öllum mögulegum flokkum.
Palli Vald og Eiríkur Jóns eru jólasveinar BR
Jólasveinatvímenningur Bridgefélags Reykjavíkur var sðilaður í kvöld. Páll Valdimarsson og Eiríkur Jónsson sigruðu með 64,6% skori. Allt um það á HEIMASÍÐUNNI Minnum svo á JÓLAMÓT BR laugardaginn 30. desember kl.
Bingi og feðgarnir Kópavogsmeistarar þó ein umferð sé eftir
Nú þeger aðeins er eftir að spila þrettándu og síðustu umferðina í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs eru Bingi og feðgarnir búnir að tryggja sér sigurinn.
Aðeins eitt stig skilur að Grant Thornton og Hótel Hamar
Annað kvöldið af fjórum í Hraðsveitakeppni BR var spilað í gærkvöldi og er aðeins eins stigs munur á tveimur efstu sveitum. Allt um það á HEIMASÍÐUNNI ATH.
Sigurjón og Haukur efstir í Aðaltvímenning BH
Þá er lokið fyrsta kvöldinu af 3 í aðaltvímenningi BH efstur er formaðurinn og endurvakinn draugur Haukur Arnar Árnason með 62,2% skor þar á eftir er Jón Ingi Björnsson og Einar Sigurdsson með 60,3% aðrir með eitthvað minna Sjá úrslit
Briddsfélag Selfoss
Aðaltvímenningur félagsins hófst síðastliðið fimmtudagskvöld með þátttöku 11 para. Tóku þeir Brynjólfur og Helgi forystuna eftir fyrsta kvöldið af þremur.
Þorsteinsmótið 2017 - RAUNSTAÐA
Staða og öll spil
Bingi og Feðgarnir bættu enn við forskotið í BK
Eftir 10 umferðir af 13 í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs eru Bingi og feðgarnir komnir með ríflega 28 stiga forystu og verður væntanlega afar erfitt fyrir næstu sveitir að brúa það bil í aðeins þremur umferðum.
Minningarmót í Borgarfirði-skráningarlisti
Miinngarmót Þorsteins Péturssonar Laugardaginn 25.nóvember 2017 skráning á bridge@bridge.
Rangæingar -- Formaðurinn og tröllið
Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman til að leika aðra umferð í 5 kvölda Butler. Lékum 33 spil með þátttöku 12 para. Formaðurinn kom til leiks með látum.
Páll Bergsson og Vigfús Pálsson efstir í BR
Fyrsta kvöldið af þremur í Monradtvímenningi Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í kvöld. Efstir urðu Páll Bergsson og Vigfús Pálsson með 63,1% skor.
Briddsfélag Selfoss
Engum tókst að skáka við þeim Kristjánið Má og Gunnlaugi í Suðurgarðsmótinu sem lauk síðastliðinn fimmtudag. Næsta mót félagsin er þriggja kvölda butler tvímenningur.
Æsispennandi Suðurlandsmóti lokið þar sem litarsvik réði úrslitum í lokin.
Suðurlandsmótið í tvímenningi var spilað í kvöld og lauk með sigri Halldórs Þorvaldssonar og Magnúsar Sverrissonar sem höfðu betur í innbyrðis viðureignum við Kristján Má Gunnarsson og Gunnlaug Sævarsson en bæði pörin enduðu með 295 stig.
Bingi og feðgarnir efstir í Kópavogi
Tvær fyrstu umferðirnar í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs voru spilaðar í kvöld. Sveit Binga og feðganna er efst með 36,89 stig af 40 mögulegum.