Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
sunnudagur, 31. desember 2017

Bronsstig og vordagskrá BK komin á heimasíðuna

Bronsstig fyrir sept-des tímabilið eru komin á heimasíðuna og dagskráin frá jan-maí 2018 einnig.

laugardagur, 30. desember 2017

Jón Ingþórsson og Hlynur Garðarsson unnu Jólamót BR

Jólamót Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í dag. Hlynur Garðarsson og Jón Ingþórsson sigruðu með 58,5% skor eftir að hafa leitt mótið lengst af.

laugardagur, 30. desember 2017

Rangæingar -- Úrslit jólamóts

Árlegt jólamót okkar Rangæinga var haldið í Hvolnum á Hvolsvelli í dag.   Til leiks mættu 16 pör og spiluðu 44 spil. Eins og menn vita hafa sauðfjárbændur glímt við alvarlegan rekstrarvanda og lagaðist lítið á þessu ári.

fimmtudagur, 28. desember 2017

Jólamót BH 28. desember 2017 - RAUNSTAÐA

Raunstaða og öll spil

miðvikudagur, 27. desember 2017

Jólamót BH og Regins 2017

Þá er komið að því !!!! Stærsta mót landsins  Jólamót BH og Regins verður haldið fimmtudaginn 28.

miðvikudagur, 27. desember 2017

Jólamót BR 30. desember

Jólamót BR verður haldið laugardaginn 30. desember 2017 í Síðumúla 39. Mótið hefst kl. 11:00 stundvíslega. Spilaður verður Monrad Barometer - 44 spil.

miðvikudagur, 20. desember 2017

Rangæingar -- Næsta spil

Við Rangæingar settumst við spil sl. þriðjudag að vanda.   Á dagskrá fundarinars var að leika barometer, jólaölkvöld, með tilheyrandi verðlaunum í öllum mögulegum flokkum.

þriðjudagur, 19. desember 2017

Palli Vald og Eiríkur Jóns eru jólasveinar BR

Jólasveinatvímenningur Bridgefélags Reykjavíkur var sðilaður í kvöld. Páll Valdimarsson og Eiríkur Jónsson sigruðu með 64,6% skori. Allt um það á HEIMASÍÐUNNI Minnum svo á JÓLAMÓT BR laugardaginn 30. desember kl.

fimmtudagur, 30. nóvember 2017

Bingi og feðgarnir Kópavogsmeistarar þó ein umferð sé eftir

Nú þeger aðeins er eftir að spila þrettándu og síðustu umferðina í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs eru Bingi og feðgarnir búnir að tryggja sér sigurinn.

miðvikudagur, 29. nóvember 2017

Aðeins eitt stig skilur að Grant Thornton og Hótel Hamar

Annað kvöldið af fjórum í Hraðsveitakeppni BR var spilað í gærkvöldi og er aðeins eins stigs munur á tveimur efstu sveitum. Allt um það á HEIMASÍÐUNNI ATH.

þriðjudagur, 28. nóvember 2017

Sigurjón og Haukur efstir í Aðaltvímenning BH

Þá er lokið fyrsta kvöldinu af 3 í aðaltvímenningi BH efstur er formaðurinn og endurvakinn draugur  Haukur Arnar Árnason  með 62,2% skor þar á eftir er  Jón Ingi Björnsson  og  Einar Sigurdsson  með 60,3% aðrir með eitthvað minna Sjá úrslit

laugardagur, 25. nóvember 2017

Briddsfélag Selfoss

Aðaltvímenningur félagsins hófst síðastliðið fimmtudagskvöld með þátttöku 11 para. Tóku þeir Brynjólfur og Helgi forystuna eftir fyrsta kvöldið af þremur.

laugardagur, 25. nóvember 2017

Þorsteinsmótið 2017 - RAUNSTAÐA

Staða og öll spil

fimmtudagur, 23. nóvember 2017

Bingi og Feðgarnir bættu enn við forskotið í BK

Eftir 10 umferðir af 13 í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs eru Bingi og feðgarnir komnir með ríflega 28 stiga forystu og verður væntanlega afar erfitt fyrir næstu sveitir að brúa það bil í aðeins þremur umferðum.

fimmtudagur, 23. nóvember 2017

Minningarmót í Borgarfirði-skráningarlisti

Miinngarmót Þorsteins Péturssonar Laugardaginn 25.nóvember 2017 skráning á bridge@bridge.

miðvikudagur, 22. nóvember 2017

Rangæingar -- Formaðurinn og tröllið

Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman til að leika aðra umferð í 5 kvölda Butler.  Lékum 33 spil með þátttöku 12 para.  Formaðurinn kom til leiks með látum.

þriðjudagur, 31. október 2017

Páll Bergsson og Vigfús Pálsson efstir í BR

Fyrsta kvöldið af þremur í Monradtvímenningi Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í kvöld. Efstir urðu Páll Bergsson og Vigfús Pálsson með 63,1% skor.

sunnudagur, 29. október 2017

Briddsfélag Selfoss

Engum tókst að skáka við þeim Kristjánið Má og Gunnlaugi í Suðurgarðsmótinu sem lauk síðastliðinn fimmtudag. Næsta mót félagsin er þriggja kvölda butler tvímenningur.

föstudagur, 27. október 2017

Æsispennandi Suðurlandsmóti lokið þar sem litarsvik réði úrslitum í lokin.

Suðurlandsmótið í tvímenningi var spilað í kvöld og lauk með sigri Halldórs Þorvaldssonar og Magnúsar Sverrissonar sem höfðu betur í innbyrðis viðureignum við Kristján Má Gunnarsson og Gunnlaug Sævarsson en bæði pörin enduðu með 295 stig.

fimmtudagur, 26. október 2017

Bingi og feðgarnir efstir í Kópavogi

Tvær fyrstu umferðirnar í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs voru spilaðar í kvöld. Sveit Binga og feðganna er efst með 36,89 stig af 40 mögulegum.