Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
fimmtudagur, 30. mars 2017

Benni og Ingi efstir í Impakeppni Bakarameistarans

Fyrsta kvöldið af þremur í Impakeppni Bakarameistarans var spilað í kvöld og tóku Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson afgerandi forystu.

miðvikudagur, 29. mars 2017

Rangæingar -- Listerinn gamli hrökk loks í gang

Sl. þriðjudag lukum við Rangæingar leik í Samverkstvímenningnum og höfðum þá ríslað okkur við það í ein fimm kvöld.  14 pör mættu til leiks.   Heldur höfðu gömlu dísilvélarnar hökt undanfarið, einhverjar gangtruflanir gert vart við sig en nú hrökk gamli Listerinn í gang og gekk þýðlega þetta kvöldið, því góðtemplararnir Sigurður og Torfi unnu kvöldið nokkuð örugglega með 64,1% skor og þar með Samverkstvímenninginn, þar sem Bjorn stórtemplar frá Húsavík náði sér ekki á strik þetta kvöldið, enda Eyþórslaus og lauk leik á innan við 50% skori.

miðvikudagur, 29. mars 2017

Árshátíð kvenna 6.maí 2017

Árshátíð Bridgekvenna verður Laugardaginn 6. Maí 2017 á Fosshótel Þórunnartúni 1                                                    Mæting kl.

föstudagur, 24. mars 2017

Briddsfélag Selfoss

Öðru kvöldi af þremur er lokið í tvímenningskeppni. Guðmundur og Sigurður hafa tekið nokkra forystu en það er kallt á toppnum og munu þeir ekki vera teknir neinum vetlingatökum á lokakvöldi mótsins.

föstudagur, 24. mars 2017

Rangæingar -- Nýir vendir

Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman á Heimalandi og lékum fjórðu og næst síðustu umferðina í Samverkstvímenningnum.  Úrslitin urðu ekki eftir bókinni, ef sú bók er á annað borð til.

fimmtudagur, 23. mars 2017

Sverrir Þóris og félagar unnu Hraðsveitakeppni BK

Í kvöld lauk fjöggura kvölda Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs með öruggum sigri sveitar Sverris Þórissonar sem fékk 191 stigi meira en Jón Steinar og hans meðreiðarsveinar.

mánudagur, 20. mars 2017

Ókeypis Bridgenámskeið fyrir 25 ára og yngri

Bridgeskólinn býður öllum 25 ára og yngri að koma á ókeypis námskeið og læra að spila bridge. Byrjað er frá grunni, ekki þarf að vera með neina þekkingu á spilinu áður en mætt er á námskeiðið.

mánudagur, 20. mars 2017

4 kvölda kauphallartvímenningur BR hefst 21. mars

Kauphallartvímenningur BR hefst næsta þriðjudag. Fjögurra kvölda mót (imps across the field). Vegleg verðlaun þar sem sigurvegarar fá gistingu og keppnisgjald í tvímenning og sveitakeppni á Siglufjarðarmótinu 6.-8. október.