Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
fimmtudagur, 27. apríl 2017

Guðmundur Aldan og Helgi G efstir í Kópavogi

Í kvöld var spilað fyrra kvöldið af tveimur í Vortvímenningi Bridgefélags Kópavogs. Guðmundur Aldan Grétarsson mætti með spánnýjan makker, Helga G Jónsson og þeir gerðu sér lítið fyrir og tóku efsta sætið.

þriðjudagur, 25. apríl 2017

3ja kvölda sveitakeppni að byrja í BR í kvöld

3ja kvölda sveitakeppni að byrja í BR í kvöld. Endilega hóið í sveit og skellið ykkur í þetta.

sunnudagur, 23. apríl 2017

Reykjavíkurliðið

Lið Reykjavíkur spytti heldur betur í lófana í tveim síðustu umferðum Kjördæmamótsins og stóðu uppi sem sigurvegarar þetta árið Mótið var haldið í þessu fína íþróttahúsi á Hellu og buðu Sunnlendingar upp á 20 stiga hita á meðan mótinu stóð bæði úti og inni Ausfirðingar voru í 2 sæti og í 3 sæti urðu Norðurland-vestra Við þókkum öllum fyrir frábæra skemmtun að venju í þessu móti Næst verðum við á Norðurlandi-vestra Sjá nánar um mótið hér 

laugardagur, 22. apríl 2017

Baldur og Jón Viðar unnu Davíðsmótið

Hið árlega Davíðsmót, til minningar um Davíð Stefánsson bónda á Saurhóli var spilað í dag. Tuttugu pör mættu til leiks og báru Baldur Björnsson og Jón Viðar Jónmundsson sigur úr bítum með skori uppá 59,7%.

fimmtudagur, 20. apríl 2017

Björn og Þórður Bakarameistarameistarar

Impamóti Bakarameistarans lauk í kvöld með öruggum sigri Björns Jónssonar og Þórðar Jónssonar. Allt um það HEIMASÍÐUNNI Síðasta mót vetrarins (vorsins) er tveggja kvölda Vortvímenningur, fimmtudagana 27 apríl og 04 maí.

miðvikudagur, 12. apríl 2017

Rangæingar -- "Ég þurfti ekki meira"

Þá er keppnistímabili okkar Rangæinga lokið vertíðina 2016-2017, a.m.k. hér á landi.   Lukum vertíðinni sl. þriðjudag með páskaeggjamóti Krappa ehf.

mánudagur, 10. apríl 2017

Hulda og Guðmundur unnu Páskatvímenningr Breiðfirðinga

Páskattvímenningur Briddsdeildar Breiðfirðingafélagsins var spilaður í gærkvöldi. Hulda Hjálmarsdóttir og Guðmundur Sigursteinsson unnu nokkuð öruggan sigur með 66,2% skori.

sunnudagur, 9. apríl 2017

Briddsfélag Selfoss

Sigurður og Guðmundur unnu þriggjakvölda tvímenning sem lauk síðastliðinn fimmtudag. Þetta var síðasta mót vetrarins og munu briddsspilarar á Selfossi nú fara að sinna vorverkum.