Fréttir - 2017 - 10
Páll Bergsson og Vigfús Pálsson efstir í BR
Fyrsta kvöldið af þremur í Monradtvímenningi Bridgefélags Reykjavíkur var spilað í kvöld. Efstir urðu Páll Bergsson og Vigfús Pálsson með 63,1% skor.
Briddsfélag Selfoss
Engum tókst að skáka við þeim Kristjánið Má og Gunnlaugi í Suðurgarðsmótinu sem lauk síðastliðinn fimmtudag. Næsta mót félagsin er þriggja kvölda butler tvímenningur.
Æsispennandi Suðurlandsmóti lokið þar sem litarsvik réði úrslitum í lokin.
Suðurlandsmótið í tvímenningi var spilað í kvöld og lauk með sigri Halldórs Þorvaldssonar og Magnúsar Sverrissonar sem höfðu betur í innbyrðis viðureignum við Kristján Má Gunnarsson og Gunnlaug Sævarsson en bæði pörin enduðu með 295 stig.
Bingi og feðgarnir efstir í Kópavogi
Tvær fyrstu umferðirnar í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs voru spilaðar í kvöld. Sveit Binga og feðganna er efst með 36,89 stig af 40 mögulegum.
Ranægingar -- Heimtur
Rangæskir spilarar hafa verið að safnast að spilaborðinu sl. vikur. Heimtur í fyrstu leitum voru með minnsta móti en síðan hafa heldur fleiri týnst í hús.
TM-Selfossi varnn Monradsveitakeppni BR
�riggja kv�lda Monradsveitakeppni Bridgef�lags Reykjav�kur lauk n� � kv�ld. Sveit TM � Selfossi st�� uppi sem sigurvegari me� 134,88 stig sem gerir r�tt t�p 15 stig a� me�altali �r hverjum leik.
Feðgarnir unnu Butlertvímenning BK Skráning í SVK hafin
Í kvöld var spilað þriðja og síðasta kvöldið í Butlertvímenningi Bridgefélags Kópavogs. Julius Snorrason og Eiður Mar Júlíusson stóðu uppi sem sigurvegarar eftir harða baráttu við Helga Bogason og Ólaf Steinason/Gunnlaug Karlsson.
Suðurlandsmót í sveitakeppni 2018
Suðurlandsmótið í sveitakeppni verður haldið helgina 13-14.janúar 2018 Spilað verður á Suðurlandi en ekki er ákveðið hvar þar. Nánari upplýsingar um mótið kemur síðar Höskuldur kemur til með að veita upplýsingar um mótið í s.
2 kvölda sveitakeppini að hefjast í BH
ALLT AÐ GERAST ÍSLAND KOMIÐ Á HM og þá getum við snúið okkur að spilamennsku 2 kvölda sveitakeppni sem hefst núna mánudaginn 16.okt :) þetta verða 8 spila leikir, 4 leikir á kvöldi, 2 kvöld eða 8 umferðir.