Fréttir - 2026 - 03
föstudagur, 20. mars 2026
Undanúrslitin Tímatafla
Fólk er byrjað að spyrja út í Undanúrslitin sem verða spiluð helgina 27-29 mars. Formið á þeim er það sama ár eftir ár, spilaðar 12 umferðir með 12 spila leikjum og tímaplanið það sama og áður.
mánudagur, 16. mars 2026
Gullstig á Íslandsmóti kvenna.
Hér kemur gullstigablað eftir Íslandsmót kvenna í sveitakeppni. Tvö gullstig eru til skiptanna í hverjum leik en ég setti ekki inn uppbótarstigin. Læt Matta um það.
fimmtudagur, 12. mars 2026
140 spilarar hafa unnið sér inn bronsstig í BR í vetur.
Nú liggur fyrir að Rúnar Einarsson og Guðjón Sigurjónsson hafa unnið sér inn flest bronsstig hjá BR í vetur. Alls hafa 140 spilarar fengið bronsstig í vetur en athygli vekur að þar af hafa aðeins 64 fengið stig bæði fyrir og eftir áramót en 76 einungis annað hvort fyrir eða eftir áramót.