Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna
fimmtudagur, 14. maí 2026

Rúnar Einarsson er bronsstigameistari BR

Rúnar Einarsson er bronsstigameistari Bridgefélags Reykjavíkur veturinn 2025-2026. Hægt að skoða öll bronsstig vetrarins hér.

þriðjudagur, 12. maí 2026

Halldór Þorvaldsson safnaði flestum bronsstigum í BOS í vetur

Halldór Þorvaldsson náði sér í flest bronsstig hjá Bridgefélagi Oddfellow og Súgfirðinga veturinn 2025-2026 eins og sjá má hér: 2025-2026

sunnudagur, 10. maí 2026

Kjördæmamótið á Gamla mátann

Hér er slóð áKjördæmamótið á Gamla mátann svo kallaða og þar er hægt að sjá heildarstöðu kjördæmanna.

föstudagur, 20. mars 2026

Undanúrslitin Tímatafla

Fólk er byrjað að spyrja út í Undanúrslitin sem verða spiluð helgina 27-29 mars. Formið á þeim er það sama ár eftir ár, spilaðar 12 umferðir með 12 spila leikjum og tímaplanið það sama og áður.

mánudagur, 16. mars 2026

Gullstig á Íslandsmóti kvenna.

Hér kemur gullstigablað eftir Íslandsmót kvenna í sveitakeppni. Tvö gullstig eru til skiptanna í hverjum leik en ég setti ekki inn uppbótarstigin. Læt Matta um það.

fimmtudagur, 12. mars 2026

140 spilarar hafa unnið sér inn bronsstig í BR í vetur.

Nú liggur fyrir að Rúnar Einarsson og Guðjón Sigurjónsson hafa unnið sér inn flest bronsstig hjá BR í vetur. Alls hafa 140 spilarar fengið bronsstig í vetur en athygli vekur að þar af hafa aðeins 64 fengið stig bæði fyrir og eftir áramót en 76 einungis annað hvort fyrir eða eftir áramót.

föstudagur, 13. febrúar 2026

Bronsstig BR 2026 komin á heimasíðuna

Bronsstigin fyrir Nýárssveitakeppni BR eru komin á heimasíðuna. Þar eru þrír Kjöríssmenn fremstir meðal jafningja.

föstudagur, 16. janúar 2026

Reykjavíkurmótið í sveitakeppni Tímaplan.

Reykjavíkurmótið í sveitakeppni er spilað á morgun frá kl. 10:00 - 18:40. Þrettán sveitir skráðar á þessari stundu og einhver von um þá fjórtándu. Spilaðar verða 7 umferðir monrad með 9 spila leikjum.