Fréttir - 2007 - 01
BRIDGEHÁTÍÐ 2007
Bridgehátíð 2007 verður haldin dagana 15.-18. febrúar næstkomandi á Hótel Loftleiðum. Skráning er þegar hafin og hægt að skrá sig hér á síðunni. Keppnisgjald í tvímenning: 12.000 á parið Keppnisgjald í sveitakeppni: 26.000 á sveitina Keppendur sem skrá sig eru vinsamlega beðnir um að gefa upplýsingar um nöfn, heimilisföng og kennitölu vegna greiðslu keppnisgjalds.
FÖSTUDAGSBRIDGE BYRJAR 12. JANÚAR
Föstudagsbridge hefur starfsemi sína 12. janúar. Bridgesamband Íslands hefur tekið að sér rekstur Föstudagsbridge, sem áður var á höndum Bridgefélags Reykjavíkur.
GLEÐILEGT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA!
Gleðilegt ár kæru spilarar! Árið fer fjörlega af stað í bridgelífinu að vanda. HSK mót á Selfossi fimmtudaginn 4.janúarBridgehátíð í Borgarnesi næstu helgiReykjavíkurmótið 9-21.janúar-Heimasíða mótsins Sjá nánar um öll svæðamót framundan hér Svæðaformenn og/eða keppnisstjórar eru hvattir til að setja fréttir um úrslit svæðamóta inn á heimasíðu bridge.