Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir 2007

laugardagur, 8. desember 2007

Ísl.mót í Butler: Jón og Þorlákur unnu annað árið í röð!

Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson byrjuðu mótið ekki vel því þeir voru neðstir eftir 1. umferð. Þeir bitu í skjaldarrendurnar og voru komnir á toppinn eftir 5 umferðir.

þriðjudagur, 27. nóvember 2007

Íslandsmeistarar í Parasveitakeppni

Íslandsmótið í Parasveitakeppni var haldið síðasliðna  helgi með þáttöku 13 sveita.'islandsmeistararnir frá því í fyrra héldu fast í titilinn og hömpuðu honum annað árið í röð.

sunnudagur, 18. nóvember 2007

Deildakeppninni lokið

Mikil spenna var fyrir síðustu umferð í báðum deildum.  4 sveitir í 1. deild gátu unnið titilinn og 3 sveitir áttu raunhæfan möguleika á 2. sætinu í annari deild, en fyrsta sætið var frátekið fyrir Málningarsveitina.

þriðjudagur, 6. nóvember 2007

Námskeið fyrir konur og yngri spilara

BSÍ býður áhugasömum keppniskonum og yngri spilurum upp á 5 kvölda námskeið, sem hefst seinni partinn í nóvember. Guðmundur Páll Arnarson hefur umsjón með námskeiðinu og verður tekinn upp þráðurinn frá því í vetur.

laugardagur, 3. nóvember 2007

Íslandsmót Yngri og (h)eldri spilara

  Nú er Íslandsmóti yngri og eldri spilara lokið.  Sigurvegarar yngri spilara eru þeir Óttar Ingi Oddsson og Gabríel Gíslason.Sigurvegarar í eldir flokki eru þeir Hrólfur Hjaltason og Sigtryggur Sigurðsson.

laugardagur, 27. október 2007

Íslandsmót kvenna í tvímenning

María Haraldsdóttir og Bryndís Þorsteinsdóttir tóku snemma forystuna á Íslandsmóti kvenna í tvímenning og sigruðu af öryggi. Dóra Axelsdótti og Erla Sigurjónsdóttir urðu í 2.sæti og Hulda Hjálmarsdóttir og Sigríður Eyjólfsdóttir í 3.sæti.

þriðjudagur, 23. október 2007

Ársþing BSÍ 2007

Ársþing BSÍ var haldið 21.október s.l. Mættir voru fulltrúar bæði af Stór-Reykjavíkursvæði og af landsbyggðinni. Guðmundur Baldursson, forseti til 2ja ára lét af embættinu og fær hann hinar bestu þakkir fyrir mjög vel unnið starf í þágu Bridgesambands Íslands.

laugardagur, 20. október 2007

Íslandsmótið í einmennig

Þrátt fyrir að Þórður hafi misstigið sig í næstsíðustu umferð, beit hann í skjaldarrendur og lauk mótinu með stæl.  Til hamingju þórður Sigurðsson Sjá stöðu.

mánudagur, 15. október 2007

ÁRSÞING BSÍ

Ársþing BSÍ verður haldið í húsnæði Bridgesambands Íslands sunnudaginn 21. október og hefst klukkan 10:00 að morgni. Félög innan hreyfingarinnar hafa setu- og atkvæðisrétt á þinginu samkvæmt kvótaútreikningi skilagreina en áheyrnarfulltrúa eru velkomnir að sitja þingið.

sunnudagur, 14. október 2007

Deildakeppnin hálfnuð

Nú er lokið fyrri helgi í deildakeppni Bridgesambands Íslands og í 1. deild leiðir Eykt, en sveit Karls Sigurhjartarsonar er í öðru sæti.  Í 2. deild eru sveitir Málningar og Sparisjóðsins í Keflavík sem leiða hjörðina.

miðvikudagur, 10. október 2007

Bermúdaskálin og Feneyjarbikarinn

Nú er að síga á seinni hlutann á heimsmeistaramótinu í bridge. Íslendingar eiga fulltrúa í mótinu um Feneyjarbikarinn en Hjördís Eyþórsdóttir spilar fyrir USA 2. Sveitin tapaði í 8-liða úrslitum fyrir Frakklandi með aðeins 1 impa! Norðmenn og Bandaríkjamenn spila til úrslita í opnum flokki á heimsmeistaramótinu í brids, sem stendur nú yfir í Shanghai í Kína.

sunnudagur, 23. september 2007

ÚRSLITALEIKUR BIKARKEPPNI BSÍ

Sveit Eyktar vann glæsilegan sigur 198 - 161 á sveit Breka í 64 spila bikarúrslitaleik sem háður var 14. september.  Spilarar í sveit Eyktar voru Aðalsteinn Jörgensen, Jón Baldursson, Sverrir Ármannsson og Þorlákur Jónsson.

laugardagur, 22. september 2007

UNDANÚRSLIT BIKARKEPPNI BSÍ

miðvikudagur, 12. september 2007

LOKAMÓT SUMARBRIDGE

Sverrir Ármannsson og Aðalsteinn Jörgensen unnu Lokamót Sumarbridge. Þeir voru með +57 og í öðru sæti voru Ómar Olgeirsson og Kristján Blöndal með +50. 3ja sætið fengu Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson með +40 Lokamót Sumarbridge 2007 2.sæti: Ómar Olgeirsson - Kristján Blöndal, 1.sæti:Sverrir Ármannsson - Aðalsteinn Jörgensen,3.

fimmtudagur, 6. september 2007

FRAMKVÆMDASTJÓRI BRIDGESAMBANDSINS

NÚ FER HVER AÐ VERÐA SÍÐASTUR AÐ SÆKJA UM!!! Bridgesamband Íslands leitar eftir öflugum starfsmanni til að gegna stöðu framkvæmdastjóra. Starfið felur í sér umsjón með daglegum rekstri sambandsins, fjáröflun, fræðslustarfi, samskiptum við fjölmiðla, félagsmenn og erlenda aðila.

föstudagur, 31. ágúst 2007

Ný mótaskrá komin út!

Búið er að gefa út mótaskrá BSÍ fyrir tímabilið 2007-2008. Tímasetningar móta eftir áramót gætu tekið breytingum eftir stjórnarfund BSÍ 5. september og/eða eftir ársþing BSÍ 21. október.

miðvikudagur, 18. júlí 2007

Bikarkeppni BSÍ - 3. umferð

3. umferð: Breki jarðverk ehf - Úlfurinn 118 - 114 Sparisjóður Siglufjarðar - Gylfi Baldursson 125 - 35 Malarvinnslan - Eykt 73 - 100 Skeljungur - Grant Thornton Frestur til að ljúka 3. umferð er til 16.

þriðjudagur, 10. júlí 2007

Sumarpistlar Guðmundar Páls Arnarsonar

Guðmundur Páll Arnarson skrifar pistla um bridge hálfsmánaðarlega í sumar.5. pistillinn kom netið í  gær og er hægt að lesa hann hér : Sumarpistlar GPA Í pistlunum er meðal annars fari yfir sagnrautir sem  íslenskir spilarar geta svara spjallinu, http://www.

sunnudagur, 8. júlí 2007

Bridge á landsmóti

  Lokið er bridgekeppni á landsmóti UMFÍ 2007.Unnu heimamenn í UMSK góðan sigur.

sunnudagur, 10. júní 2007

BIKARKEPPNI SUMARSINS - fyrstu úrslit

Bikarkeppni Bridgesambandsins fer að venju fram í sumar og búið er að draga í fyrstu umferð. Alls skráðu 31 sveit sig til leiks.  Keppnisgjald er 4.000 krónur á umferð.