Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir 2007

miðvikudagur, 21. febrúar 2007

ISLANDSMÓT KVENNA Í SVEITAKEPPNI 3.-4. MARS

Íslandsmót kvenna í sveitakeppni verður háð helgina 3.-4. mars. Keppt verður um réttinn "Íslandsmeistari kvenna í sveitakeppni 2007" auk þess sem efsta sveitin vinnur sér rétt til að skipa landslið Íslands á Norðurlandamótinu í Lillehammer í sumar.

mánudagur, 19. febrúar 2007

NORSKIR SIGRAR Á BRIDGEHÁTÍÐ

Norðmenn voru áberandi í verðlaunasætum Bridgehátíðar, bæði í tvímenningnum og sveitakeppninni. Jan Petter Svendsen og Erik Sælensminde náu þeim sjaldgæfa áfanga að fagna sigri í báðum keppnum.

mánudagur, 19. febrúar 2007

ÚRSLIT ALLRAR BRIDGEHÁTÍÐAR Á SWANGAMES

Sjá má "lifandi"úrslit hér á Swangames.com Miðvikudagskvöldið 14. febrúar var haldið Stjörnustríð í Ráðhúsi Reykjavíkur og náði sveit Málningar þar að landa sigrinum.

föstudagur, 16. febrúar 2007

Tvímenningur Bridgehátíðar rúmlega hálfnaður

Nú er lokið17 umferðum í tvímenningi Bridgehátíðar. Mikil barátta er um efstu sætin og jafnt á toppnum. Staða efstu para er þannig: 1. Justin Hackett - Nick Sandqvist                             59,07% 2. Ásmundur Pálsson - Guðmundur P.

föstudagur, 16. febrúar 2007

BRIDGEHÁTÍÐ

Nú er lokið15 umferðum í tvímenningi Bridgehátíðar. Íslendingarnir Bjarni Einarsson og Sigurbjörn Haraldsson eru í efsta sætinu en síðan kom nokkur erlend pör í humátt á eftir þeim.

föstudagur, 16. febrúar 2007

LETTAR Í FORYSTU

Nú er lokið 10 umferðum af 23 í tvímenningskeppni Bridgehátíðar og í síðustu umferð fyrsta spiladagsins náðu Lettarnir Ivars Rubenis og Ugis Jansons forystunni.

mánudagur, 12. febrúar 2007

LANDSLEIKUR VIÐ ZIA Í BRIDGE!!

Fimmtudaginn 15. febrúar á milli klukkan 14-17 verður háður landsleikur í bridge í húsi Orkuveitunnar á milli sveitar Zia Mahmood og íslenska landsliðins.

fimmtudagur, 8. febrúar 2007

STJÖRNUHRAÐSVEITAKEPPNI

Nú er orðið ljóst hverjir spila í stjörnuhraðsveitakeppninni sem spiluð verður í Ráðhúsi Reykjavíkur miðvikudagskvöldið 14. febrúar. Búið er að velja 16 pör til að spila annan vænginn í hraðsveitakeppninni, 13 erlend pör og 3 íslensk landsliðspör.

föstudagur, 2. febrúar 2007

SKRÁ SIG Í TÍMA

Húsnæðið á Hótel Loftleiðum rúmar aðeins ákveðinn fjölda og vegna þess hve skráning hefur gengið vel fram að þessu, eru menn beðnir um að skrá sig í tíma.

fimmtudagur, 1. febrúar 2007

GLÆSIMÁLTÍÐ Í PERLUNNI

Bridgesamband Íslands hefur pantað mat fyrir 100 manns í Perlunni, eftir lok tvímenningskeppninnar föstudaginn 16. febrúar klukkan 19:30. Boðið er upp á glæsilega fjögurra rétta máltið fyrir 4.990 krónur án víns.

miðvikudagur, 24. janúar 2007

BRIDGEHÁTÍÐ 2007

Bridgehátíð 2007 verður haldin dagana 15.-18. febrúar næstkomandi á Hótel Loftleiðum. Skráning er þegar hafin og hægt að skrá sig hér á síðunni. Keppnisgjald í tvímenning: 12.000 á parið Keppnisgjald í sveitakeppni: 26.000 á sveitina Keppendur sem skrá sig eru vinsamlega beðnir um að gefa upplýsingar um nöfn, heimilisföng og kennitölu vegna greiðslu keppnisgjalds.

fimmtudagur, 4. janúar 2007

FÖSTUDAGSBRIDGE BYRJAR 12. JANÚAR

Föstudagsbridge hefur starfsemi sína 12. janúar. Bridgesamband Íslands hefur tekið að sér rekstur Föstudagsbridge, sem áður var á höndum Bridgefélags Reykjavíkur.

miðvikudagur, 3. janúar 2007

GLEÐILEGT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA!

Gleðilegt ár kæru spilarar! Árið fer fjörlega af stað í bridgelífinu að vanda. HSK mót á Selfossi fimmtudaginn 4.janúarBridgehátíð í Borgarnesi næstu helgiReykjavíkurmótið 9-21.janúar-Heimasíða mótsins  Sjá nánar um öll svæðamót framundan hér  Svæðaformenn og/eða keppnisstjórar eru hvattir til að setja fréttir um úrslit svæðamóta inn á heimasíðu bridge.