Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir 2007

fimmtudagur, 31. maí 2007

Norðurlandamótið í Lillehammer

Ísland gerði jafntefli við Dani í opnum flokki í síðustu umferð Norðurlandamótsins sem dugði ekki til að lyfta liðinu úr fimmta sæti keppninnar, til þess þurfti Ísland 18 stig.

laugardagur, 19. maí 2007

Kjördæmamótið

Reykjavík vann sigur á Kjördæmamótinu sem haldið var helgina 19.-20. maí á Ísafirði. Sveit Reykjavikur leiddi nánast allan tímann, en fyrir lokaumferðina var sveit N-Vestra búin að minnka bilið niður í 5 stig.

miðvikudagur, 16. maí 2007

SUMARBRIDGE AÐ HEFJAST Í KVÖLD

Sumarbridge hefur starfsemi sína í kvöld klukkan 19:00. Þeir sem hyggjast mæta í kvöld, mæti tímanlega til að gefa mótshöldurum kost á að byrja í tíma.

þriðjudagur, 15. maí 2007

KJÖRDÆMAMÓTIÐ Á ÍSAFIRÐI 19.-20. MAÍ

Kjördæmamótið í bridge verður að þessu sinni í kjördæmi Vestfirðinga og spilað helgina 19.-20. maí. Spilastaður verður Menntaskólinn á Ísafirði.  Keppnisgjald er 32.000 kr.

mánudagur, 7. maí 2007

Langþráður Bötler

Er að slá inn bötlerinn í úrslitum íslandsmótsins í sveitakeppni.  Vona að Bessi og Bjarni þurfi ekki að skila páskaeggjum sínum.

laugardagur, 5. maí 2007

Íslandsmótið í paratvímenningi

  Mótinu lokið með nokkuð öruggum sigri Ragnheiðar Nielsen og Ómars Olgeirssonar Sjá stöðu 2-Ásgeir Ásbjörnsson-Dröfn Guðmundsdóttir, 1-Ragnheiður Nielsen-Ómar Olgeirsson,3-Arngunnur Jónsdóttir-Kristján Blöndal ásamt Guðmundi Baldurssyni forseta BSÍ

mánudagur, 23. apríl 2007

ÆSISPENNANDI LOKASPRETTUR Á ISLM. Í TVÍM. 2007

Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson unnu sigur á Íslandsmótinu í tvímenningi sem haldið var helgina 20.-21. apríl eftir æsispennandi lokasetu. Jón Baldursson varð Íslandsmeistari í tvímenningi 4 ár í röð en 21 ár eru síðan hann vann til þessa titils síðast.

föstudagur, 20. apríl 2007

ÍSLANDSMÓT Í TVÍMENNINGI 2007

Tímaáætlun Íslandsmóts í tvímenningi 2007 Laugardagur 21. apríl 1. umferð             11:00 - 11:45 2. umferð             11:47 - 12:32 3. umferð             12:34 - 13:19 4. umferð             13:21 - 14:06  Matarhlé               14:06 - 14:45  5. umferð             14:45 - 15:30 6. umferð             15:32 - 16:17 7. umferð             16:19 - 17:04 8. umferð             17:06 - 17:51  hlé                        17:51 - 18:10 9. umferð             18:10 - 18:55 10. umferð           18:57 - 19:42 11. umferð           19:44 - 20:30 12. umferð           20:32 - 21:17 Sunnudagur 22. apríl 13. umferð           11:00 - 11:45 14. umferð           11:47 - 12:32 15. umferð           12:34 - 13:19 16. umferð           13:21 - 14:06  Matarhlé               14:06 - 14:45 17. umferð           14:45 - 15:30 18. umferð           15:32 - 16:17 19. umferð           16:19 - 17:04 20.

laugardagur, 7. apríl 2007

SVEIT EYKTAR ÍSLANDSMEISTARI Í SVEITAKEPPNI

  Íslandsmeistarar 2007 - Eykt: Þorlákur Jónsson, Jón Baldursson, Sigurbjörn Haraldsson, Aðalsteinn Jörgensen,Sverrir Ármannsson og  Bjarni Einarsson ásamt Guðmundi Baldurssyni forseta BSÍ.

laugardagur, 7. apríl 2007

Alda og Kristján með besta árangurinn í Góumóti

Alda Guðnadóttir og Kristján B. Snorrason náðu besta árangrinum samanlagt á Góumótinu sem haldið var samhliða úrslitakeppni Íslandsmótsins í sveitakeppni 5. og 6. apríl.

föstudagur, 6. apríl 2007

ÚRSLIT ÍSLANDSMÓTSINS Í SVEITAKEPPNI

Úrslitakeppni fjögurra efstu sveita verður háð laugardaginn 7. apríl á Hótel Loftleiðum. Spilamennskan hefst klukkan 11:00 og þá mætast sveitir Eykt og Myndform annars vegar og Karl Sigurhjartarson - Grant Thornton hins vegar.

föstudagur, 23. mars 2007

DRAMATÍK Í LOK UNDANKEPPNI ÍSLANDSMÓTS Í SVK.

Dramatík einkenndi lokaniðurstöðuna í undankeppni Íslandsmóts í sveitakeppni, en 3 efstu sveitirnar af 10 komust áfram í úrslitakeppni Íslajndsmót sem verður háð 4.-7. apríl á Hótel Loftleiðum.

fimmtudagur, 22. mars 2007

FÖSTUDAGSBRIDGE FELLUR NIÐUR

sunnudagur, 18. mars 2007

ÖRUGGUR SIGUR GRÍMSBRÆÐRA Á ÍSLM. YNGRI SPILARA

Sveit Grímsbræðra vann öruggan sigur í Íslandsmóti yngri spilara í sveitakeppni, fékk 119 stig í 6 leikjum. Spilarar í sveit Grímsbræðra voru Grímur Kristinsson, Guðjón Hauksson, Inda Hrönn Björnsdóttir og Jóhann Sigurðarson.

mánudagur, 5. mars 2007

ÍSLANDSMÓT Í SVK - UNDANK. OG ÚRSLIT

Fjölmargar sveitir víðsvegar að af landinu taka þátt í undankeppni Íslandsmóts í sveitakeppni sem haldið verður á Hótel Loftleiðum. Undankeppni verður haldin dagana 23.-25. mars og úrslitin 4.-7. apríl.

mánudagur, 5. mars 2007

REYKJAVÍKURMÓT Í TVÍMENNINGI

Reykjavíkurmótið í tvímenningi verður spilað laugardaginn 10. mars. Keppnisstjóri verður Björgvin Már Kristinsson og keppnisgjald 4.000 krónur á parið.

sunnudagur, 4. mars 2007

SR-GROUP MEÐ ÖRUGGAN SIGUR Á ÍSLM. KV. Í SVK. 2007

Sveit SR-Group vann öruggan sigur á Íslandsmóti kvenna í sveitakeppni sem fram fór helgina 3.-4. mars. Sveit SR-Group var með forystu allan tímann og þegar upp var staðið, var sveitin með 26 stiga forystu á annað sætið.

laugardagur, 3. mars 2007

SVEIT SR-GROUP MEÐ GÓÐA FORYSTU Í ÍSLANDSMÓTI KVENNA Í SVEITAKEPPNI 2007

Sveit SR-Group hefur náð 20 stiga forystu í Íslandsmóti kvenna í saveitakeppni að afloknum 5 umferðum af 9. Spilarar í sveit SR-Group eru Ragnheiður Nielsen, Hjördís Sigurjónsdóttir, Anna Ívarsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir og Ljósbrá Baldursdóttir.

þriðjudagur, 27. febrúar 2007

KVENNANÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST

Kvennanámskeið eru nú að hefjast hjá Guðmundi Páli Arnarssyni, en þau eru haldin fimmtudagskvöldin 8.mars - 10. maí. Námskeiðin verða frá klukkan 19:00-22:00. Stundatafla námskeiðanna er eftirfarandi: 1. Fimmtudaginn 8. mars 2. Fimmtudaginn 29. mars 3.  Fimmtudaginn 12. apríl 4.  Fimmtudaginn 19. apríl 5.  Fimmtudaginn 26. apríl 6.  Fimmtudaginn 3. maí 7.  Fimmtudaginn 10. maí Athugið að námskeiðin verða ekki fimmtudagana 15. og 22. mars og 5. apríl.

mánudagur, 26. febrúar 2007

Útsendingar á Bridgebase frá Bridgehátíð

Minnt er á að hægt er að skoða útsendingar á Bridgebase hér Þeir sem voru að spila gátu auðvitað ekki fylgst með en hægt er að skoða leikina eftir á..