Fréttir - 2007 - 02
KVENNANÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST
Kvennanámskeið eru nú að hefjast hjá Guðmundi Páli Arnarssyni, en þau eru haldin fimmtudagskvöldin 8.mars - 10. maí. Námskeiðin verða frá klukkan 19:00-22:00. Stundatafla námskeiðanna er eftirfarandi: 1. Fimmtudaginn 8. mars 2. Fimmtudaginn 29. mars 3. Fimmtudaginn 12. apríl 4. Fimmtudaginn 19. apríl 5. Fimmtudaginn 26. apríl 6. Fimmtudaginn 3. maí 7. Fimmtudaginn 10. maí Athugið að námskeiðin verða ekki fimmtudagana 15. og 22. mars og 5. apríl.
Útsendingar á Bridgebase frá Bridgehátíð
Minnt er á að hægt er að skoða útsendingar á Bridgebase hér Þeir sem voru að spila gátu auðvitað ekki fylgst með en hægt er að skoða leikina eftir á..
ISLANDSMÓT KVENNA Í SVEITAKEPPNI 3.-4. MARS
Íslandsmót kvenna í sveitakeppni verður háð helgina 3.-4. mars. Keppt verður um réttinn "Íslandsmeistari kvenna í sveitakeppni 2007" auk þess sem efsta sveitin vinnur sér rétt til að skipa landslið Íslands á Norðurlandamótinu í Lillehammer í sumar.
NORSKIR SIGRAR Á BRIDGEHÁTÍÐ
Norðmenn voru áberandi í verðlaunasætum Bridgehátíðar, bæði í tvímenningnum og sveitakeppninni. Jan Petter Svendsen og Erik Sælensminde náu þeim sjaldgæfa áfanga að fagna sigri í báðum keppnum.
ÚRSLIT ALLRAR BRIDGEHÁTÍÐAR Á SWANGAMES
Sjá má "lifandi"úrslit hér á Swangames.com Miðvikudagskvöldið 14. febrúar var haldið Stjörnustríð í Ráðhúsi Reykjavíkur og náði sveit Málningar þar að landa sigrinum.
Tvímenningur Bridgehátíðar rúmlega hálfnaður
Nú er lokið17 umferðum í tvímenningi Bridgehátíðar. Mikil barátta er um efstu sætin og jafnt á toppnum. Staða efstu para er þannig: 1. Justin Hackett - Nick Sandqvist 59,07% 2. Ásmundur Pálsson - Guðmundur P.
BRIDGEHÁTÍÐ
Nú er lokið15 umferðum í tvímenningi Bridgehátíðar. Íslendingarnir Bjarni Einarsson og Sigurbjörn Haraldsson eru í efsta sætinu en síðan kom nokkur erlend pör í humátt á eftir þeim.
LETTAR Í FORYSTU
Nú er lokið 10 umferðum af 23 í tvímenningskeppni Bridgehátíðar og í síðustu umferð fyrsta spiladagsins náðu Lettarnir Ivars Rubenis og Ugis Jansons forystunni.
LANDSLEIKUR VIÐ ZIA Í BRIDGE!!
Fimmtudaginn 15. febrúar á milli klukkan 14-17 verður háður landsleikur í bridge í húsi Orkuveitunnar á milli sveitar Zia Mahmood og íslenska landsliðins.
STJÖRNUHRAÐSVEITAKEPPNI
Nú er orðið ljóst hverjir spila í stjörnuhraðsveitakeppninni sem spiluð verður í Ráðhúsi Reykjavíkur miðvikudagskvöldið 14. febrúar. Búið er að velja 16 pör til að spila annan vænginn í hraðsveitakeppninni, 13 erlend pör og 3 íslensk landsliðspör.
SKRÁ SIG Í TÍMA
Húsnæðið á Hótel Loftleiðum rúmar aðeins ákveðinn fjölda og vegna þess hve skráning hefur gengið vel fram að þessu, eru menn beðnir um að skrá sig í tíma.
GLÆSIMÁLTÍÐ Í PERLUNNI
Bridgesamband Íslands hefur pantað mat fyrir 100 manns í Perlunni, eftir lok tvímenningskeppninnar föstudaginn 16. febrúar klukkan 19:30. Boðið er upp á glæsilega fjögurra rétta máltið fyrir 4.990 krónur án víns.