Undanúrslit í sveitarkeppni í Bridge voru spiluð um helgina á hótel Natura. Var mótið æsispennandi og gekk öll framkvæmd mjög vel. 12 efstu sveitirnar komast í úrslit og voru sveitir að detta inn og út úr úrslitum alveg fram á síðasta spil.
Sveit Grant Thornton var efst í undanúrslitum með 62.19 stig, sveit Hótel Norðurljósa í 2.sæti með 155.40 stig og þriðja sæti sveit Birkis Jón Jónssonar með 154.16 stig.
Var virkilega létt yfir öllum og mikil stemming meðal spilara. En úrslitin verða svo spiluð 21.-24. apríl.