Skráning í bikarkeppnina Heimasíða kjördæmamóts BSÍ Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Mikil spenna á heimsmeistaramótinu Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Fréttir - 2022 - 06

mánudagur, 13. júní 2022

Góður sigur

Rétt í þessu var Ísland að sigra Grikkland í opna flokknum með 19 impa mun sem gerir 14,8-5,2 sigur. Ísland er í 9 sæti þegar Þetta er skrifað. Í næstu umferð spilar Island við sterkt lið Sviss sem er í 2 sæti.

sunnudagur, 12. júní 2022

Tap gegn Svíþjóð

Ísland tapaði í 2.umferð gegn Svíþjóð með 5,82 gegn 14,18. Fyrsti leikur á morgun er gegn Grikklandi sem töpuðu stórt fyrir Wales í 1.umferð en unnu svo Portúgal í 2.umferð.

sunnudagur, 12. júní 2022

Frábær byrjun á EM

Opni flokkurinn átti svo sannarlega stórleik í 1.umferð á EM. Tyrkland var andstæðingurinn og fyrirfram var búist við erfiðum leik. En Ísland gerði sér lítið fyrir og gjörsigraði Tyrkland 48-10 í impum og fékk 17,85 vinningsstig.

laugardagur, 11. júní 2022

EM byrjar á morgun

Opni flokkurinn hefur leik á EM á morgun. Andstæðingar Íslands á morgun eru Tyrkland og Svíþjóð.

föstudagur, 10. júní 2022

Bikarinn 2022 - upplýsingar

Reglugerð Skorkort Tengiliðalisti 1. umferð   síðasti spiladagur er 11. júlí    2. umferð   síðasti spiladagur er 8. ágúst   3. umferð   síðasti spiladagur er 3.sept Undanúrslit og úrslit verða spiluð fyrripart sept.

þriðjudagur, 7. júní 2022

Mótaskrá 22-23

Mótanefnd hefur afgreitt mótaskrá 22-23.    Það verður ekki butler tvímenningur í ár. En mun koma inn aftur á næsta ári. Verið er að vinna í steðsetningu á einstökum mótum sem verður uppfært jafn móðum í mótaskrá.

föstudagur, 3. júní 2022

Dregið hefur verið í bikarnum

Dregið hefur verið í bikarnum. Það eru 12 leikir þar sem sigurvegarinn fer áfram auk 4 sveita sem tapa sínum leik með minnsta mun af þeim sveitum sem tapa.